Fréttasafn
2024
apríl, maí, júní, ágúst, september, október.
2023
mars, maí, júní, september, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, september, október.
2021
janúar, mars, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember, desember.
2010
Fréttir eftir mánuðum
Gleðilega páska
22/03/13Gleðilega páska!
Starfsfólk Varmárskóla óskum nemendum og fjölskyldum gleðilegra páska og vonum að fólk hafi það gott um hátíðirnar.
Minnum á að skólahald hefst að nýju þriðjudaginn 2. apríl samkvæmt stundartöflu.
Vel heppnaðar árshátíðir
22/03/13Nemendur í 7.bekk héldu árshátíð sína þriðjudaginn 19.mars og nemendur 8.-10. fimmtudaginn 21.mars. Báðar árshátíðarnar tókust vel og voru nemendur foreldrum sínum og skóla til sóma. Nemendur 7.bekkinga voru með heimatilbúin skemmtiatriði eftir borðhald og svo var dansað. Nemendur 8.-10.bekkinga borðuð saman glæsilegan mat frá Hansa kokki og stúlkunum í eldhúsinu. Starfsfólk skólans sá um að þjóna nemendum til borðs. Skemmtiatriði voru þónokkur en mest kom á óvart þegar Páll Óskar kallaði á hópinn úr borðhaldi og sá um stuðið fram eftir kvöldi. Myndir frá báðum árshátíðunum eru á myndasíðunni.
Vorhátíð Varmárskóla 1.-6. bekkja tókst vel
22/03/1320. mars sl. hélt Varmárskóli sína árlegu Vorhátíð í yngri deild. Nemendur voru með þrjár sýningar og buðu gestum upp á ýmis atriði m.a. söng, dans, leikrit ofl. Skólakórinn tók lagið og það gerði einnig vinningshafi karókíkeppni 6. bekkjar. Atriðin voru hvert öðru betra og greinilegt að kennarar og nemendur hafa lagt mikinn metnað í verkin. Fullt var út úr dyrum á öllum sýningum og gestir skemmtur sér greinilega vel. Á milli sýninga voru svo nemendur 6. bekkja með ýmsa hressingu til sölu en ágóði sýningarinnar rennur í ferðasjóð þeirra.
Myndir á myndasíðu.
Eðlisfræðistöðvar á þemadögum
22/03/13Á þemadögum 19. – 20. mars voru átta eðlis- og efnafræðistöðvar. Nemendum var skipt upp í hópa og stoppaði hver hópur 13 mínútur á hverri stöð þar sem kennari útskýrði mismunandi krafta, orku eða efnahvörf.
Nemendur voru fræddir um þurrís þ.e. frosinn koltvísýring (CO2), en koltvísýringur sem lofttegund er m.a. að finna í útblæstri bensínknúinna bifreiða. Þeir fengu einnig vitneskju um að þurrís er eitt af fáum efnum sem breytist úr föstum ham yfir í loftkenndan án þess að fara í fljótandi ham á milli. Þurrís er mjög kaldur og breytist í gas við -78,5 °C og myndast þá dulúðlegur reykur.
Á annarri stöð fengu nemendur að leika sér með slím, búið til úr kornsterkju og vatni en slík blanda hefur þann eiginleika að bregðast sérstaklega við þrýstingi. Þannig er hægt að hnoða bolta úr blöndunni en um leið og þrýstingnum sleppir lekur boltinn niður eins og bráðið smjör.
Þriðja stöðin bauð upp á heimatilbúin hraunlampa úr vatni, matarolíu, matarilit og gostöflu. Fjórða stöðin leyfði nemendum að vinna með stöðurafmagn með því að blása upp blöðrur og svo voru ýmis viðfangsefni sem nemendur gátu unnið með s.s. að láta blöðruna taka upp hluti með rafhlaðinni blöðru og beygt vatnsbunu.
Á fimmtu stöðinni var fljótandi köfnunarefni þar sem nemendur lærðu um lofttegundir, þenslu og eðlismassa.
Sjötta stöðin leyfði nemendum að prófa hvernig talíur auðvelda mönnum vinnu og gátu þeir m.a. lyft samnemendum upp með margfaldri talíu.
Á sjöundu stöðinni var kraftalögmál Newtons útskýrt og nemendur fengu að prófa hvort kenningin um að hlutur leitist við að viðhalda stöðu sinni, með því að stafla upp nokkrum hlutum með egg á toppnum. Svo átti að slá á staflann og ef kraftalögmálið fékkst staðist myndi eggið sitja eftir og falla svo í glas sem var neðst í staflanum.
Vinsælasta stöðin var án efa helíum stöðin en þar fengu nemendur fræðslu um andrúmsloftið og mismunandi þyngd lofttegunda. Helíum er sex sinnum léttara en andrúmsloftið og fyrir vikið sveiflast raddböndin mun hraðar sé helíum andað að sér og gerir það röddina skræka og undarlega. Nemendur voru að sjálfsögðu fræddir um hættuna á því að anda að sér öðrum lofttegundum.
Varmárskóli í Skólahreysti - komst í úrslit!
19/03/13Varmárskóli stóð sig með mikilli prýði í Skólahreysti jafnt keppendur sem áhorfendur. Varmárskóli kom örlítið seinna en hinir skólarnir í hús og var frekar róleg stemming í húsinu en um leið og krakkarnir úr Gaggó Mos komu í salinn þá ætlaði allt um koll að keyra þvílíkur hávaði, söngur og gleði. Þannig leið dagurinn og ljósmyndarar og myndatökumenn voru alltaf nálægt krökkunum úr Varmárskóla því þar var lífið. Keppendur stóðu sig með mikilli prýði og voru nálægt sínu besta í sínum greinum. Þórdís Rögn tók þátt í armbeygjum og hreystigreip og tók 37 armbeygjur og hékk í 3 mínútur og 11 sekúndur. Alexander Sigurðsson tók þátt í upphýfingum og dýfum. Hann tók 32 upphýfingar og 29 dýfur. Í hraðabrautinni fóru Axel og Kristín Þóra úr 9.bekk og voru 2:31 mínútu að fara brautina. Axel vakti mikla athygli fyrir góðan árangur í hraðabrautinni og fór hana á einum hraðasta tíma sem farinn hefur verið. Mikill möguleiki er að við förum í úrslitin í Höllinni 2.maí en þangað fara tveir stigahæstu skólarnir sem lenda í öðru sæti.
Úrslit voru að Lindaskóli sigraði með 79 stig, Varmárskóli varð í öðru sæti með 73 stig og í þriðja sæti varð Lágafellsskóli með 72 stig.
Varmárskóli komst í úrslit og keppir í beinni útsendingu 2.maí - nú er að taka daginn frá!
Opið hús hjá skólaskrifstofu - Jafnrétti og tækifæri fyrir alla
19/03/13Opið hús HJÁ SKÓLASKRIFSTOFU MOSFELLSBÆJAR- Jafnrétti og tækifæri fyrir alla. Á Opnu húsi Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar ÞRIÐJUDAGINN 19. MARS kl: 20-21 verður sjónum beint að jafnrétti í sinni víðustu mynd. Eiga allir jöfn tækifæri? Er virk jafnréttisfræðsla í gangi á öllum skólastigum? Erum við föst í bleikum og bláum boxum? Hvaða áhrif hefur þetta á börnin okkar? Hvert er hlutverk okkar sem foreldra?
Þemadagar, íþróttadagur og árshátíð hjá eldri deild þessa vikuna
18/03/13Það er margt að gerast í Varmárskóla þessa dagana. Í eldri deild fara fram þemadagar mánudag til miðvikudags. Þemað er orka og gildi Mosfellsbæjar - Virðing - Jákvæðni - Framsækni - Umhyggja. Nemendum er aldursblandað og eru fjölmargar smiðjur í gangi.
Nemendur heimsækja einnig Reykjanesið og kynnast landfræðilegum undrum þess.
Þriðjudaginn 19.mars verður árshátíð 7.bekkinga, miðvikudag verður vorhátíð hjá yngri deild og forvarnafundur hjá nemendum og foreldrum 9. og 10.bekkinga og fimmtudaginn verður íþróttahátíð hjá 7.-10.bekk. Um kvöldið verður síðan stórglæsileg árshátíð 8.-10.bekkinga haldin í skólanum og skemmta nemendur sér fram eftir kvöldi. Föstudaginn 22.mars hefst kennsla í eldri deild kl. 10:00.
Forvarnarfundur - mikilvægt að foreldrar ásamt nemendum í 9. og 10.bekk mæti
18/03/13Forvarnarfundur verður haldinn fyrir foreldra nemenda í 9. og 10.bekk miðvikudaginn 20.mars nk. Boðað hefur verið til fundar með foreldrum vegna atvika sem upp hafa komið að undanförnu. Mikilvægt er að foreldrar komi á fundinn til skrafs og ráðagerða. Á fundinn kemur Magnús hjá Maríta fræðslunni.
Foreldrar og nemendur 10. bekkja mæta kl. 19 og 9. bekkja kl. 21.
Vitað er að þetta skerts á vorhátið yngri deildar en þetta er sá tími sem okkur býðst og mikilvægt að fá þennan fund fyrir páskafrí.
Stjórnendur og starfsfólk.
Vorhátíð Varmárskóla - yngri deild
18/03/13Vorhátíð Varmárskóla verður haldin miðvikudaginn 20.mars 2013
Sýningartímar
kl. 16:30
1.-EDJ, 2.-ÁH, 3.-SH, 4.-ÞF, 5.-US, 5.-HBJ, 6.-ÁGM
17:40
1.-IE, 2.-BI, 3.-KMH, 4.-SBJ, 5.-SB, 6.-GA
18:40
1.-EMH, 2.-SBT, 3.-SJ, 4.-SÓÞ, 5.-EHS, 6.-HG
Söngur, leikrit, dans og margt fleira skemmtilegt. Skólakórinn syngur, verðlaunahafi í Karíókíkeppni 6.bekkja tekur lagið. Hver skemmtun er um klukkustund.
Aðgangseyrir er sá sami og undanfarin ár eða 500 kr.
Frítt fyrir nemendur í yngri deild. Foreldrar athugið að hægt er að sækja allar sýningarnar þegar einu sinni hefur verið greitt.
Ekki er gert ráð fyrir að nemendur komi inn í salinn meðan á þeirra sýningur stendur.
Þeir verða inni í sínum stofum og foreldrar/forráðamenn þurfa að sækja þau þangað eftir að sýningu lýkur. Þetta er gert vegna þess að salurinn rúmar ekki svona marga í sæti. Hinsvegar mega nemendur koma á aðrar sýingar en einungis í fylgd foreldra/forráðamanna og eru þar á þeirra ábyrgð.
Foreldrar eru beðnir að sitja út sýninguna en ekki yfirgefa salinn þegar þeirra barn hefur lokið við sitt atriði.
Mikið ónæði hefur skapast af þessu og leiðinlegt fyrir þau börn sem raðast síðast að sýna fyrir hálfan sal.
Happadrætti
Í lok hverrar sýningar verður dregið út eitt númer á aðgöngumiða.
Veitingasala
Að sýningu loknum og á milli sýninga verður veitingasala, pylsur, gos, sælgæti og kaffi selt á vægu verði.
Ekki er tekið við kortum hvorki í miðasölu né veitingasölu.
Allir hjartanlega velkomnir. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Starfsfólk og nemendur skólans
Stærðfræðikeppni Borgarholtsskóla
18/03/13Stærðfræðikeppni Borgarholtsskóla fór fram föstudaginn 8. mars. Skólum í Grafarvogi, Grafarholti, Árbæ , Mosfellsbæ og Kjalarnesi er boðin þáttaka. 145 tóku þátt í keppninni að þessu sinni og átti Varmárskóli 29 þátttakendur. Níu af okkar nemendum höfnuðu í 1. - 10. sæti en það eru:
8. bekkur
Davíð Sindri Pétursson
Jóel Fjalarsson
Þorsteinn Jónsson
9.bekkur
Álfhildur María Magnúsdóttir
Gylfi G. Styrmisson
Hugrún Elfa Sigurðardóttir
Tanja Rasmusen
10. bekkur
Arna Karen Jóhannsdóttir
Sonja Orradóttir
Við óskum nemendum okkar til hamingju með frábæran árangur!
Úrslit stóru upplestrarkeppninnar 2013
11/03/13Úrslitakvöld Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Lágafellsskóla fimmtudaginn 7. mars. Nemendur í 7. bekk hafa frá því í nóvember æft upplestur í íslenskutímum og eftir undankeppni innan skólans í febrúar voru þau Amanda Lind Davíðsdóttir, Agnes Emma Sigurðardóttir, Aníta Hulda Sigurðardóttir, Anna Pálína Sigurðardóttir og Robert David Hood valin sem fulltrúar skólans á lokakvöldinu.
Varðandi morgundaginn 7.mars 2013
06/03/13Við biðjum alla foreldra að fylgjast með veðurspá morgundagsins fimmtudaginn 7. mars 2013. Gert er ráð fyrir slæmu veðri en á vef Veðurstofu Íslands er eftirfarandi viðvörun nú kl. 14:00. Búist er við stormi eða roki (meðalvindhraða meiri en 23 m/s) S- og V-til á landinu í dag og syðst á landinu á morgun. Gildir til 07.03.2013. Mikilvægt er að foreldrar fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni, enda getur veður þróast með ófyrirséðum hætti og aðstæður verið mjög mismunandi eftir svæðum. Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þurfi barni í skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum.
Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Tilkynningar er hægt að hringja inn í síma 5250700 og senda tölvupóst á netfangið varmarskoli@varmarskoli.is ef mikið álag er á símkerfinu. Hið sama gildir ef foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa. Nú er í gangi viðbúnaðarstig 1 (og á fleiri tungumálum pólska, enska, spænska og tælenska) og er skólinn opinn samkvæmt því nema annað verði tilkynnt í fjölmiðlum.
Stóra upplestrarkeppnin haldin 7.mars kl. 20:00 í Lágafellsskóla
06/03/13Stóra upplestrarkeppnin verður haldin í Lágafellsskóla fimmtudaginn 7.mars kl. 20:00.
Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið úr grunnskólum Mosfellsbæjar, lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun. Auk þess koma fram ungir hljóðfæraleikarar og skólakór Varmárskóla. Skáld keppninnar að þessu sinni eru Friðrik Erlingsson og Þóra Jónsdóttir.
Efnt var til samkeppni um myndskreytingu boðskorts og dagskrár og verða veittar viðurkenningar fyrir það á hátíðinni.
Ein af verðlaunamyndunum prýðir þessa frétt.
Gestir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Ný frétt kl. 14:40 frá Almannavörnum
06/03/13Starfsmenn vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar vinna hörðum höndum að því að hreinsa stofnæðar á höfuðborgarsvæðinu og samhliða því götur í íbúahverfi. Víkurvegur er nú orðinn fær og Reykjanesbraut til og frá Hafnarfirði sömuleiðis. Reykjanesbraut er þó flughál og ekki verður hægt að koma því við að sanda eða salta hana fyrr en veður lægir.
Mikil umferðarteppa er á Vesturlandsvegi við Bauhaus.
Björgunarsveitir vinna ötullega við að aðstoða fólk á stofnæðum og munu sinna fólki í íbúahverfum þegar færi gefst. Heilbrigðisstarfsfólk verður aðstoðað við að komast til vinnu við vaktaskipti nú í eftirmiðdaginn.
Send verður tilkynning til skólayfirvalda og foreldra uppúr klukkan þrjú um það hvenær þeir megi sækja börn sín í skólana. Þegar hefur foreldrum barna í skólum vestan Kringlumýrarbrautar verið tilkynnt að þeir megi sækja börnin ef þeir hafa góð tök á því.
Áríðandi tilkynning til foreldra
06/03/13Áríðandi tilkynning til foreldra skólabarna og starfsmanna skóla á höfuðborgarsvæðinu frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og almannavörnum.
"Börnin ykkar eru örugg í skólunum. Vinsamlegast reynið ekki að komast á bílum til þess að sækja þau fyrr en lögregla hefur gefið út tilkynningu þar að lútandi.
Allir björgunaraðilar á svæðinu eru á ferðinni og einkabílar í umferðinni eru til mikilla trafala."
Varmárskóli sendir nýjan tölvupóst til foreldra og setur frétt á heimasíðu þegar lögregla hefur sent frá sér tilkynningu. Frístundasel skólans er opið í dag en verður í skólanum (ekki í selunum).
Rútur fara ekki í Mosfellsdal eða í Leirvogstungu. Rútur fara í Byggðirnar en foreldrar þurfa að láta vita ef þeir vilja EKKI að börnin þeirra taki rútu. Athugið að börnin þurfa að ganga vegspotta frá rútum að heimili.
Gott er ef foreldrar geta sameinast um að sækja börn í skólann til að létta á álagi en ekki er ráðlegt fyrir fólk að koma úr bænum þar sem allt er stopp á leið upp í Mosfellsbæ.
Óveður
06/03/13Vont veður er nú í Mosfellsbæ og mjög blint og þungfært. Foreldrum er bent á að kynna sér viðbragðsáætlun vegna röskunar á skólastarfi sökum óveðurs, hana má finna með því að smella hér íslenska, pólska, enska, spænska og tælenska.
Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar skólaárið 2013 - 2014
04/03/13Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2013-14 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar. Frá 08. mars til 20. mars er innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2013 og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu (sjá nánar reglur um skiptingu skólasvæða á vef Mosfellsbæjar www.mos.is).
Fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála
04/03/13Fimmtudaginn 7.mars 2013 kl.19:30-21:00 verðurfræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála í sal yngri deildar Varmárskóla.
Fyrirlesari er Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og höfundur bókarinnar EKKI MEIR. Bókin er leiðavísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn.
Það sem Kolbrún fjallar um er:
- Staðarmenning og starfsfólkið
- Forvarnir gegn einelti á vinnustöðum, skólum og í félögum
- Birtingarmyndir eineltis
- Þolandinn/gerandinn, aðstæður og persónueinkenni
- Afleiðingar eineltis á sjálfsmyndina
- Viðbrögð við kvörtunum um einelti, vinnsla málsins frá tilkynningu til málaloka
- Helstu mistök í eineltismálum
Á erindinu er Aðgerðaráætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun dreift sem og eineltis veggspjaldi. Á erindinu er jafnframt hægt að nálgast bókina EKKI MEIR á kostnaðarverði.
Léttar kaffiveitingar í boði
Allir velkomnir
Æskulýðsvettvangurinn