Foreldrar

Að baki Varmárskóla standa öflugir foreldrar. Stöðugt er verið að leita leiða til að auðvelda foreldrum þátttöku í skólastarfinu. Varmárskóil býður foreldra ætíð velkomna í skólann, hvort sem er til að taka þátt í skólastarfinu eða til skrafs og ráðagerðar. Foreldrar tilvonandi 1.bekkinga er boðið á fund og í heimsókn í Varmárskóla að vori til og svo aftur að hausti þegar nemendur hefja nám. Á haustönn er námsefniskynningin "Við fyrir ykkur" sem fer fram að morgni til og foreldrum jafnframt boðið uppá morgunkaffi.

Bekkjarskemmtanir eru haldnar yfir veturinn sem foreldrar eru ætíð velkomnir á. Sjöttu bekkingar bjóða foreldrum sýnum til veislu í febrúar, ár hvert þar sem kynnt er samþættingarverkefni um Norðurlönd. Þar fá foreldrar að bragða á mat ættaðan frá Norðurlöndum, fá kynningu um löndin og jafvel danssýningu.

Þróunarverkefnið "Sameinuð stöndum við" er áhugavert verkefni þar sem foreldrum er boðið í skólann og nemendur eru gestgjafar.

Varmárskóli er stöðugt að leita að tækifærum til að fá foreldra meira inn í skólastarfið og hvetjum við foreldra til að hafa samband ef þeir hafa áhuga á að taka meiri þátt í skólastarfninu.