logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar skólaárið 2012 - 2013

29/02/12

Mos_logo_gildiInnritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2012 -2013 fer fram frá 1.-18 mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu. Innritun fer fram í gegnum Íbúagátt. Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem koma úr Krikaskóla, flytjast til Mosfellsbæjar eða koma úr einkaskólum þarf að fara fram fyrir 1. apríl

Meira ...

Nemendur í Varmárskóla fengu silfurverðlaun í Lífshlaupinu

24/02/12

lifshlaupid (3) (800x600)Nemendur og starfsmenn Varmárskóla tóku þátt í Lífshlaupinu, vinnustaðakeppni og hvatningarleik grunnskólanna sem fram fór í 5.skiptið. Vinnustaðir skráðu hreyfingu sína frá  1. - 21. febrúar en skólarnir frá 1. -14.febrúar. Þess má geta að nemendur Varmárskóla hafa tekið þátt í Lífshlaupinu frá upphafi og alltaf lent í þremur efstu sætunum. Að þessu sinni lentu nemendur skólans í 2.sæti sem er frábær árangur þar sem þátttaka í Lífshlaupinu hefur aldrei verið eins mikil og nú í ár. Starfsmenn skólans enduðu í 4. sæti sem er frábær árangur en flestir starfsmenn tóku þátt á einn eða annan veg. Þórhildur skólastjóri fór ásamt fulltrúum nemenda að veita viðtöku verðlauna en skólinn fékk silfurplatta fyrir 2.sæti nemenda. Fulltrúar nemenda voru Axel Óskar Andrésson nemandi í 8-LJ og Ólöf Líf Ármannsdóttir 6-AJ en þau voru fulltrúar bekkja í yngri og eldri deild sem best stóðu sig í Lífshlaupinu. Til hamingju með þennan sigur nemendur Varmárskóla og starfsmenn!

Meira ...

Vetrarfrí í Varmárskóla

24/02/12

Föstudaginn 24. febrúar og 27.febrúar er vetrarfrí í Varmárskóla. Skólinn er lokaður þessa daga.

Meira ...

Öskudagur í yngri deild

22/02/12

Oskudagur (80) (600x800)Öskudagur í yngri deild tókst vel. Allir krakkar mættu í hinum ýmsu gerfum kl. 8:10 um morguninn. Í boði var Karíokí keppni hjá 6.bekk og fengu 5.bekkingar að fylgjast með. Síðan var kötturinn sleginn úr tunnunni, dagskrá var í stofum hjá bekkjarkennurum og að lokum fengu krakkarnir pizzu í hádegismat. Góður dagur eins og sjá má á myndum á myndasíðunni undir öskudagur í yngri deild.

Meira ...

Öskudagur í eldri deild

22/02/12

Oskudagur_eldri_deild (1) (800x600)Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í eldri deild skólans í dag. Stór hluti nemenda og starfsfólks mætti í hinum ýmsu búningum að því tilefni.

Klukkan tíu dönsuðu nemendur kónga um ganga skólans og að því loknu voru veitt verðlaun fyrir frumlegustu búningana í hverjum árgangi og á meðal starfsmanna. Að því loknu sýndi töframaðurinn Einar einstaki töfrabrögð við góðar undirtektir. Í hádeginu borðuðu nemendur svo pítsu með bestu lyst.

Meira ...

Afhending skákviðurkenninga í 6.bekk

22/02/12

6b_verdlaunaafhending_skak (24)Þórdís Ásgeirsdóttir kennari vinaleiðar hefur staðið fyrir afmælisskákmóti Varmárskóla fyrir 4., 5. og 6.bekk. Þriðjudaginn 21.febrúar fóru fram afhending viðurkenninga í 6.bekk.Hægt er að sjá myndir á myndasíðunni frá verðlaunaafhendingunni.

Meira ...

Öskudagur í Varmárskóla- ekki er gefið frí að ástæðulausu

21/02/12

Miðvikudaginn 22.febrúar gerum við okkur dagamun og skemmtum okkur saman í búningum. Skóli er frá kl. 8:10-13:15 og frístundaselið opið fyrir þá aðila sem þar eru skráðir eftir það. Margt verður til gamans gert, kónga dansaður í eldri deild, kötturinn sleginn úr tunnunni í yngri deild, karíókí og fleira.

Meira ...

Bekkjarkvöld hjá 2-ÁH

17/02/12

2AH bekkjarkvold (19)Bekkjarkvöld var haldið hjá 2-ÁH þann 9. febrúar. Á dagskrá voru fjögur leikrit, tónlistaratriði og söngur. Eftir sýningu voru veglegar veitingar í boði foreldranna. Þetta var skemmtileg kvöldstund. Fleiri myndir á myndasíðu.

Meira ...

Verðlaunaafhending hjá 5.bekk í afmælisskákmóti skólans

17/02/12

5b_skak_verdlaun (4)Þórdís Ásgeirsdóttir kennari í vinaleið hefur staðið fyrir afmælisskákmóti í tilefni 50 ára afmæli Varmárskóla. Allir þátttakendur skákmótsins fengu viðurkenningu og þeir sem lentu í efstu sætum í stúlkna og drengjaflokki fengu auk þess verðlaunapening. Þórdís kom einnig færandi hendi og hefur heklað vinabönd fyrir alla 350 nemendur skólans í tilefni kærleiksvikunnar. Nemendur fengu því líka glæsileg vinabönd. Fleiri myndir á myndasíðunni undir 5.bekkur - afmælishátíð.

Meira ...

Nemendur úr 9. og 10. bekk í Varmárskóla heimsóttu Riga í Lettlandi 11. – 16. febrúar

17/02/12

116Vikuna 11. – 16. febrúar voru 15 nemendur og þrír kennarar úr Varmárskóla,  í  Riga í Lettlandi að taka þátt í Nordplus junior verkefni.  Nemendurnir heimsóttu  jafnaldra sína í  Rīgas Zolitūdes Ģimnazija skólanum.

Meira ...

Þorrablót hjá 4-JV

15/02/12

4JV_bekkjarkvold (26)Krakkarnir í 4. JV voru með Þorrablót og buðu foreldrum uppá kynningu úr námsefninu um Ísland áður fyrr. Börnin og foreldrar þeirra komu með girnilegan Þorramat, sem allir gæddu sér á. Sjá fleiri myndir á myndasíðunni 4.JV Þorrablót.

Meira ...

Ekki verður farið í skíðaferðina í eldri deild í dag.

15/02/12

Lokað er í Bláfjöllum í dag og því verður ekki farið í skíðaferðalagið í dag. Kennsla samkvæmt stundatöflu er í dag.

Meira ...

ABC barnaþorpin í Nairobi í Kenía

13/02/12

5b_ABC_sofnunNemendur í 5. bekk munu fara um allan bæ um helgina að safna peningum í söfnunarbauka fyrir ABC.  Krakkarnir fengu öll buff merkt ABC, þau munu bera þau þegar þau eru að safna.

Meira ...

Valtími hjá 2.bekk

13/02/12

valtimi_2bekkur (3)Börnin í 2.bekk fengu valtíma eftir velheppnuð bekkjarkvöld. Eins og sjá má á myndunum nutu börnin sín. Myndirnar eru á myndasíðu - 2.bekkur - valtími.

Meira ...

Stóra upplestrarkeppnin - undankeppni

10/02/12

Upplestrarkeppni_2012 (6)Undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina fór fram í hátíðarsal skólans miðvikudaginn 8. febrúar að viðstöddu fjölmenni. Tíu nemendur kepptu fyrir hönd íslenskuhópa sinna en nemendur höfðu áður valið fulltrúa sína í kennslustund í íslensku.

Meira ...

100 daga hátíð

09/02/12

100 daga h t¡Ð (1)Þriðjudaginn 7.febrúar héldu 1. bekkingar uppá að það eru 100 dagar frá því að skólinn var settur. Krakkarnir komu í búningum og voru með kórónur sem á stóð 100. Þau eru búin að vera að telja hvern dag síðan skólinn byrjaði og flokka dagana í tugi, í dag náðu þau loksins 100.

Meira ...

8. AÞ fékk hvatningarverðlaun Rásar 2 í Lífshlaupinu

08/02/12

Varmárskóli tekur þátt í lífshlaupinu og eru nemendur og starfsfólk hvatt til að hreyfa sig eins oft í viku og tök eru á. 8.AÞ í Varmárskóla var dreginn út í hvatningarleik Rásar 2 og fær í verðlaun ávaxtakörfu frá Ávaxtabílnum. Til hamingju með þetta 8.AÞ. Áfram Varmárskóli!

Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira