Fréttasafn
2024
apríl, maí, júní, ágúst, september.
2023
mars, maí, júní, september, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, september, október.
2021
janúar, mars, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september.
2012
janúar, febrúar, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember, desember.
2010
Fréttir eftir árum
Myndir frá jafnréttisdegi
19/09/13Kynningarfundur 1. bekk
19/09/13Myndir frá opnu húsi
18/09/13Kynningarfundur 1. bekk
17/09/13Þriðjudaginn 1. október kl. 18.00 verður fundur með foreldrum nemenda í 1. bekk Varmárskóla. Á þessum kynningarfundi verður stoðþjónusta skólans kynnt og kennarar verða með opnar stofur þar sem hægt verður að glugga í námsefni vetrarins. Einnig erum við að innleiða Byrejendlæsi sem verður kynnt foreldrum á fundinum.
Dagskrá:
• Þórhildur Elfarsdóttir skólastjóri
• Heiðveig Andrésdóttir sérkennari
• Guðríður Haraldsdóttir sálfræðingur
• Guðrún Bjarkadóttir skólahjúkrunarfræðingur
• Sólveig Franklínsdóttir formaður foreldrafélgasins
• Andrea Anna Guðjónsdóttir sérkennari Krikaskóla
• Umsjónarkennarar verða með opnar stofur.
Opið hús í Varmárskóla 2. - 10. bekkur
15/09/13Miðvikudaginn 18. september verður opið hús í Varmárskóla á milli kl. 8:15-9:30 fyrir foreldra nemenda í 2. - 10. bekk
Í 2. - 6. bekk verður hver bekkur með sínum umsjónarkennara. Námsefni og kennslugögn verða til sýnis og nemendur vinna sem mest sjálfstætt. Foreldrar eru hvattir til að ganga um, kynna sér starfsumhverfið og heilsa upp á starfsfólkið.
Í eldri deild munu nemendur úr 10. bekk taka á móti gestum er þeir koma í skóla og bjóða þá velkomna. Nemendur eru tilbúnir að ganga með gestum um skólann sinn og kynna hann.
Allar kennslustofur verða opnar, ásamt því að námsefni verður til sýnis og munu nemendur vinna sem mest sjálfstætt svo gestum er velkomið að líta inn í stofurnar.
Kennarar og nemendur skólans eru tilbúnir í spjall og umræður. Verið því óhrædd við að spyrja spurninga eða spjalla við nemendur og kennara um námsefnið og skólastarfið.
Aðilar sem koma að tómstundum nemenda verða með kynningu á sinni starfsemi á sal.
Í lokin býður skólinn gestum upp á kaffi og rúnstykki á kaffistofunum.
Við hlökkum til að sjá ykkur á miðvikudaginn.
Starfsfólk og nemendur Varmárskóla
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar í Varmárskóla
15/09/13Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar 2013 verður haldinn hátíðlegur í eldri deild Varmárskóla, Mosfellsbæ, fimmtudaginn 19. september kl. 13 – 14.
Yfirskrift dagsins er: Unglingar og fræðsla um jafnrétti
Dagskrá:
13.00 Ávarp formanns fjölskyldunefndar Kolbrún Þorsteinsdóttir
13.05 Unglingar og jafnrétti - Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla verður með erindi sem er tileinkað unglingum.
13.50 Afhending jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2013 Fulltrúar fjölskyldunefndar
14.00 Dagskrárlok
Fundarstjóri er Sigríður Indriðadóttir mannauðsstjóri og jafnréttisfulltrúi Mosfellsbæjar.
Nemendur á unglingastigi í grunnskólum Mosfellsbæjar eru sérstakir heiðursgestir ásamt kennurum sínum.
Starfsfólk Mosfellsbæjar og íbúar í Mosfellsbæ eru einnig hjartanlega velkomnir.
Opið hús í Varmárskóla
13/09/13Miðvikudaginn 18. september verður opið hús í Varmárskóla á milli kl. 8:15-9:30.
Í yngri deild verður hver bekkur með sínum umsjónarkennara. Námsefni og kennslugögn verða til sýnis og nemendur vinna sem mest sjálfstætt. Foreldrar eru hvattir til að ganga um, kynna sér starfsumhverfið og heilsa upp á starfsfólkið.
Í eldri deild munu nemendur úr 10. bekk taka á móti gestum og bjóða þá velkomna. Nemendur eru tilbúnir að ganga með gestum um skólann sinn og kynna hann.
Allar kennslustofur verða opnar, ásamt því sem námsefni verður til sýnisog munu nemendur vera að vinna sem mest sjálfstætt og því meira en velkomið að líta inn í stofurnar.
Kennarar og nemendur skólans eru tilbúnir í spjall og umræður og gestir ættu því að vera óhræddir við að spyrja spurninga eða spjalla við nemendur og kennara um námsefnið og skólastarfið.
Aðilar sem koma að tómstundum nemenda verða með kynningu á sinni starfsemi á sal.
Skólinn býður upp á kaffi og rúnstykki á kaffistofunum.
Hlökkum til að sjá sem flesta á miðvikudaginn.
Starfsfólk og nemendur Varmárskóla
Morgunfundur með foreldrum 7. bekkinga
11/09/13Umsjónarkennarar 7. bekkja bjóða foreldrum/forráðamönnum að koma á stuttan morgunfund miðvikudaginn 18. september klukkan 8:10 á kaffistofu starfsfólks í eldri deild.
Á fundinum verður rætt um skólabyrjun, samræmd próf og fyrirhugaða ferð að Úlfljótsvatni 8.-9. október.
Við vonumst til að sjá sem flesta.
Flottur föstudagur
30/08/13Föstudagurinn 30. ágúst var flottur föstudagur í Varmárskóla. Þema dagsins voru hverfalitirnir, blár, bleikur, rauður og gulur. Að því tilefni að bæjarhátíðin Í túninu heima er haldin þessa helgina var skólinn einnig skreyttur með rauðu sem er litur hverfisins. Á myndasíðunni má sjá myndir af nemendum í eldri deild við hönnun skreytinga sem síðan var komið fyrir í gluggum skólans.
Hefðbundið skólahald hefst mánudaginn 26.ágúst 2013
23/08/13Hefðbundið skólahald hefst mánudaginn 26.ágúst 2013. Nemendur eru hvattir til að ganga eða hjóla í skólann eftir því sem við á. Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að fylgja börnum sínum fyrsta daginn til að athuga hvort allir séu ekki örugglega að fara örugga leið í skólann og kunni allar umferðarreglurnar.
VÍS hefur tekið saman dreifildi þar sem áréttað eru öryggismál barna í umferðinni. Lesið það hér.
Síða 1 af 6