logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vel heppnaðar árshátíðir

22.03.2013 14:26

Nemendur í 7.bekk héldu árshátíð sína þriðjudaginn 19.mars og nemendur 8.-10. fimmtudaginn 21.mars. Báðar árshátíðarnar tókust vel og voru nemendur foreldrum sínum og skóla til sóma. Nemendur 7.bekkinga voru með heimatilbúin skemmtiatriði eftir borðhald og svo var dansað. Nemendur 8.-10.bekkinga borðuð saman glæsilegan mat frá Hansa kokki og stúlkunum í eldhúsinu. Starfsfólk skólans sá um að þjóna nemendum til borðs. Skemmtiatriði voru þónokkur en mest kom á óvart þegar Páll Óskar kallaði á hópinn úr borðhaldi og sá um stuðið fram eftir kvöldi. Myndir frá báðum árshátíðunum eru á myndasíðunni.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira