logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála

04.03.2013 13:24

Fimmtudaginn 7.mars 2013 kl.19:30-21:00 verðurfræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála í sal yngri deildar Varmárskóla.

 

Fyrirlesari er Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og höfundur bókarinnar EKKI MEIR. Bókin er leiðavísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn. Það' sem Kolbrún fjallar um er:

  • Staðarmenning og starfsfólkið
  • Forvarnir gegn einelti á vinnustöðum, skólum og í félögum
  • Birtingarmyndir eineltis
  • Þolandinn/gerandinn, aðstæður og persónueinkenni
  • Afleiðingar eineltis á sjálfsmyndina
  • Viðbrögð við kvörtunum um einelti, vinnsla málsins frá tilkynningu til málaloka
  • Helstu mistök í eineltismálum

Á erindinu er Aðgerðaráætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun dreift sem og eineltis veggspjaldi. Á erindinu er jafnframt hægt að nálgast bókina EKKI MEIR á kostnaðarverði.

 

Léttar kaffiveitingar í boði

Allir velkomnir

 

Æskulýðsvettvangurinn

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira