logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Þemadagar, íþróttadagur og árshátíð hjá eldri deild þessa vikuna

18.03.2013 15:07

Það er margt að gerast í Varmárskóla þessa dagana. Í eldri deild fara fram þemadagar mánudag til miðvikudags. Þemað er orka og gildi Mosfellsbæjar - Virðing - Jákvæðni - Framsækni - Umhyggja. Nemendum er aldursblandað og eru fjölmargar smiðjur í gangi.

Nemendur heimsækja einnig Reykjanesið og kynnast landfræðilegum undrum þess.

Þriðjudaginn 19.mars verður árshátíð 7.bekkinga, miðvikudag verður vorhátíð hjá yngri deild og forvarnafundur hjá nemendum og foreldrum 9. og 10.bekkinga og fimmtudaginn verður íþróttahátíð hjá 7.-10.bekk. Um kvöldið verður síðan stórglæsileg árshátíð 8.-10.bekkinga haldin í skólanum og skemmta nemendur sér fram eftir kvöldi. Föstudaginn 22.mars hefst kennsla í eldri deild kl. 10:00.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira