logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

Kvíði barna-Hvað er til ráða?

30/03/17
Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar býður foreldrum uppá hálftíma örfræðslu um kvíða barna. Í fyrirlestrinum mun Una Rúnarsdóttir sálfræðingur fjalla um eðli og einkenni kvíða og hvernig foreldrar geti brugðist við ef einkenna verður vart. Þriðjudaginn 4. apríl kl. 8.15 er fyrirlestur fyrir foreldra nemenda í 1.-4. bekk. Fimmtudaginn 6. apríl kl. 8.15 er fyrirlestur fyrir foreldra nemenda í 5.-7. bekk. Fyrirlestrarnir verða haldnir í sal yngri deildar Varmárskóla.
Meira ...

Glæsileg úrslit í Stóru upplestrarkeppninni í Mosfellsbæ

24/03/17Glæsileg úrslit í Stóru upplestrarkeppninni í Mosfellsbæ
Fimmtudaginn 23. mars fór lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Mosfellsbæ fram í hátíðarsal Lágafellsskóla. Varmárskóli fór með sigur af hólmi annað árið í röð en Sigríður Ragnarsdóttir úr 7. TH hlaut fyrstu verðlaun. Í öðru sæti varð svo Rebekka Sunna Sveinsdóttir úr 7. AÁ einnig úr Varmárskóla. Í þriðja sæti var Harpa Dís Hákonardóttir úr Lágafellsskóla. Aðrir keppendur Varmárskóla voru þau Andri Eyfjörð Jóhannesson, Ásdís Rán Kolbeinsdóttir og Hermann Þór Þórarinsson. Gestir fengu að hlusta á keppendur flytja brot út sögunni Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason og ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur auk þess sem nemendur fluttu sjálfvalin ljóð. Skólakór Varmárskóla söng nokkur lög og Íris Torfadóttir nemandi í 7. TH Varmárskóla lék á fiðlu. Við í Varmárskóla óskum öllum krökkunum bæði úr Varmárskóla og Lágafellskóla innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum fyrir ánægjulegt kvöld. Þær Aldís Leoní Rebora 7. AÁ og Embla Rún Pétursdóttir 7. LJ hlutu viðurkenningar fyrir myndskreytingar á dagskrá keppninnar. Myndir frá hátíðinni eru hér
Meira ...

4. ÁH hreinsar skólalóð

24/03/174. ÁH hreinsar skólalóð
Að morgni fimmtudagsins 16. mars voru börnin í 4. ÁH dugleg að tína upp ruslið á skólalóðinni og gerðu það af mikilli samviskusemi. Skólalóðin var hrein og fín eftir þrifin og börnin voru mjög glöð með afraksturinn.
Meira ...

Vorhátíð yngri deildar

23/03/17
Kátir krakkar komu fram á tveimur sýningum í gær og stóðu sig frábærlega fyrir framan fulla sali af fólki. Nemendur og umsjónarkennarar 6. bekkja hafa veg og vanda af þessari sýningu en allir nemendur og starfsfólk yngri deildar koma að vinnu og undirbúningi. Myndir
Meira ...

Skólakór Varmárskóla í Eldborg

23/03/17
Á laugardaginn var blés bæjarlistamaður Mosfellsbæjar, Gréta Salóme, til stórtónleika í Eldborgarsalnum í Hörpu ásamt Alexander Rybak. Þar fékk skólakór Varmárskóla tækifæri til syngja með henni ásamt kór Kársnesskóla. Frammistaða og framganga krakkanna var til fyrirmyndar og sátu margir afar stoltir foreldrar í Eldborgarsalnum þetta kvöld. Ekki má gleyma frammistöðu Ómars kórstjóra sem stýrði kórnum ásamt allri vinnu og skipulagningu af einskærri prýði. Við í Varmárskóla erum að sjálfsögðu að springa úr stolti af þessum frábæru og hæfileikaríku krökkum!
Meira ...

Gaman saman úti - opið hús hjá Skólaskrifstofu miðvikudaginn 29.mars 2017

23/03/17Gaman saman úti - opið hús hjá Skólaskrifstofu miðvikudaginn 29.mars 2017
Síðasta opna hús vetrarins verður miðvikudaginn 29. mars kl. 20:00-21:00 í Listasal Mosfellsbæjar. Að þessu sinni mun Ævar Aðalsteinsson frístundafræðingur og verkefnastjóri stikaðra gönguleiða í Mosfellsbæ segja frá þeim útivistarmöguleikum sem bjóðast börnum og fjölskyldum þeirra í Mosfellsbæ. Mosfellsbær er fjölskylduvænn útivistarbær þar sem þú finnur tenginguna við náttúru og heilsusamlegt umhverfi í heilsueflandi samfélagi. Fjöldi útivistarsvæða og fjölmargir möguleikar eru fyrir hendi enda stutt í ósnorta náttúru í okkar heimabæ.
Meira ...

Heimsókn í Krikaskóla – 4. bekkur

16/03/17
Dagana 8. og 9. mars fóru nemendur í 4. bekk í heimsókn í Krikaskóla. Árgangnum var skipt í tvennt á heimsóknardagana. Þessi heimsókn er liður í samstarfi skólanna, Brúum bilið, þar sem nemendur í 4. bekk Krikaskóla verða í 5. bekk í Varmárskóla. Börnin fengu að skoða skólann í fylgd með nemendum Krikaskóla og fóru í ratleik úti. Þar sem veðrið lék við okkur borðuðu börnin nestið sitt úti. Eins og sjá má á myndunum skemmtu börnin sér konunglega. Nemendur Krikaskóla koma síðan í heimsókn í Varmárskóla í byrjun apríl.
Meira ...

Gleðistund í salnum

08/03/17
Troðfullur salur tók vel undir þegar Aron Brink mætti í skólann í dag ásamt fylgdarliði og söng lagið sitt úr Söngvakeppni Sjónvarpsins. Myndir frá þessu eru á myndasíðu ásamt fleiri nýjum myndum frá öskudegi og Opinni viku Listaskólans
Meira ...

Forritunarkeppni grunnskólanna

07/03/17
Tækniskólinn heldur Forritunarkeppni grunnskólanna 1. apríl 2017. Keppnin er opin öllum grunnskólanemendum sem hafa áhuga á forritun og er þetta í annað skipti sem þessi keppni er haldin. Til þess að undirbúa keppendur sem best, munu nemendur og kennara Tækniskólans, halda forritunarbúðir laugardaginn 11. mars frá kl. 10:00-16:00 í Vörðuskóla. Forritunarbúðirnar eru góður undirbúningur fyrir forritunarkeppnina og er skráning í forritunarbúðirnar á: www.kodun.is Enginn kostnaður er við að taka þátt í forritunarbúðunum né forritunarkeppninni. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.kodun.is eða hjá undirritaðri. Hlökkum til að sjá ykkur. Kær kveðja, Guðrún Randalín Lárusdóttir Skólastjóri Upplýsingatækniskólans grl@tskoli.is / 514 9351
Meira ...

Fundargerðir foreldrafélagsins og Skólaráðs má finna hér á heimasíðunni

06/03/17
Fundargerðir foreldrafélags og skólaráðs má finna hér á heimasíðunni. Reynt er að setja fundargerðir inn við fyrsta tækifæri.
Meira ...

Börn í leik í snjóruðningum

01/03/17
Borið hefur á því að börn séu að búa sér til snjóhús inni í ruðningum/sköflum sem hafa myndast við götur og gatnamót. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að ræða við börn sín um hættuna sem getur fylgt því að gera snjóhús í snjóruðningum. Oft eru gamlir ruðningar færðir til eða mokað burtu. Við viljum jafnframt biðja akandi vegfarendur að hafa gætur á þegar þeir keyra um göturnar svo ekki verði slys og gangandi vegfarendur sem verða varir við börn í snjóhúsum að hafa þessa hættu á orði við börnin. Stöndum saman í að gæta barnanna okkar og höfum gaman saman í snjónum.
Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira