logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vorhátíð Varmárskóla - yngri deild

18.03.2013 13:39

Vorhátíð Varmárskóla verður haldin miðvikudaginn 20.mars 2013

 

Sýningartímar

kl. 16:30

1.-EDJ, 2.-ÁH, 3.-SH, 4.-ÞF, 5.-US, 5.-HBJ, 6.-ÁGM

17:40

1.-IE, 2.-BI, 3.-KMH, 4.-SBJ, 5.-SB, 6.-GA

18:40

1.-EMH, 2.-SBT, 3.-SJ, 4.-SÓÞ, 5.-EHS, 6.-HG 

 

Söngur, leikrit, dans og margt fleira skemmtilegt. Skólakórinn syngur, verðlaunahafi í Karíókíkeppni 6.bekkja tekur lagið. Hver skemmtun er um klukkustund.

 

Aðgangseyrir er sá sami og undanfarin ár eða 500 kr.

Frítt fyrir nemendur í yngri deild. Foreldrar athugið að hægt er að sækja allar sýningarnar þegar einu sinni hefur verið greitt.

 

Ekki er gert ráð fyrir að nemendur komi inn í salinn meðan á þeirra sýningur stendur.

Þeir verða inni í sínum stofum og foreldrar/forráðamenn þurfa að sækja þau þangað eftir að sýningu lýkur. Þetta er gert vegna þess að salurinn rúmar ekki svona marga í sæti. Hinsvegar mega nemendur koma á aðrar sýingar en einungis í fylgd foreldra/forráðamanna og eru þar á þeirra ábyrgð.

 

Foreldrar eru beðnir að sitja út sýninguna en ekki yfirgefa salinn þegar þeirra barn hefur lokið við sitt atriði.

Mikið ónæði hefur skapast af þessu og leiðinlegt fyrir þau börn sem raðast síðast að sýna fyrir hálfan sal.

 

Happadrætti

Í lok hverrar sýningar verður dregið út eitt númer á aðgöngumiða.

 

Veitingasala

Að sýningu loknum og á milli sýninga verður veitingasala, pylsur, gos, sælgæti og kaffi selt á vægu verði.

 

Ekki er tekið við kortum hvorki í miðasölu né veitingasölu.

Allir hjartanlega velkomnir. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta.

 

Starfsfólk og nemendur skólans

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira