logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar skólaárið 2013 - 2014

04.03.2013 16:09

moslitInnritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2013-14 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2013 fer fram frá  08. mars til 20. mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu (sjá nánar reglur um skiptingu skólasvæða á vef Mosfellsbæjar www.mos.is).

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar eða koma úr einkaskólum þarf að fara fram fyrir 1. apríl.

Sérstök athygli er vakin á því, að umsóknarfrestur vegna náms í grunnskólum annarra sveitarfélaga en Mosfellsbæjar er til 1.apríl og skulu umsóknir berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.

Athygli er einnig vakin á því að nemendur með lögheimili í Mosfellsbæ er sækja nú þegar skóla í öðrum sveitarfélögum þurfa líka að sækja um fyrir 1. apríl, þar sem umsóknir endurnýjast ekki sjálfkrafa.
Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.

Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita ritarar og deildarstjórar grunnskólanna. Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.


Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira