logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Einelti

Fræðsla um einelti

Hver bekkur hefur einn bekkjartíma í viku í stundatöflunni og er þeim tímum ætlað að vera vettvangur fyrir nemendur að ræða einelti, félagatengsl og líðan í bekknum. Nemendum eru kynntar bekkjarreglur sem sérstaklega eru samdar í því skyni að stöðva og koma í veg fyrir einelti. Þeir eiga að læra um hvernig einelti birtist, hvaða aðferðum er beitt og hvaða tjóni það getur valdið.

Umræður, hlutverkaleikir, myndbönd og annað efni er nýtt til að gera nemendurna meðvitaða um einelti sem fyrirbrigði og þeim eru kenndar einfaldar leiðir til að bregðast við því einelti sem þau verða vör við umhverfis sig. Lögð er áhersla á að efla færni nemenda til að velja rétta afstöðu og hjálpa þeim sem verða fyrir einelti. 

Eineltisteymi og hlutverk starfsfólks

Í eineltisteymi skólans eru skólastjórnendur og fulltrúar starfsfólks. Allt starfsfólk skólans hefur mikilvægu hlutverki að gegna með því að fylgjast grannt með nemendum innan dyra og á skólalóð, vera á verði gagnvart einelti og öðru ofbeldi sem og ef samskiptavandi kemur upp meðal nemenda. Að taka fljótt og vel á málum við slíkar aðstæður er afar mikilvægt og það er kappkostað í Varmárskóla.

 

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira