logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

2. EDJ í Byrjendalæsi

28/09/17
Það var skemmtilegt í kennslustund hjá 2.EDJ þegar nemendur voru í Byrendalæsi. Þá fengu þeir líka að spila veiðimann og leysa stafasúpu. Gaman gaman!
Meira ...

Skólaakstur mánudaginn 25. september fellur niður

21/09/17
Mánudaginn 25. september er fræðsludagur grunnskóla og frístundar og munu skólarúturnar því ekki ganga þann dag.
Meira ...

Kynningarfundir í eldri deild

13/09/17Kynningarfundir í eldri deild
Í byrjun september buðum við foreldrum nemenda í 7.-10. bekk velkomna á morgunfund í skólanum. Fór þar fram kynning á komandi skólaári þar sem meðal annars var farið yfir ástundun, forvarnir, námið, skólaferðalög, lestrarstefnu og fleira sem viðkemur skólastarfinu. Fundirnir voru vel sóttir og hafa til að mynda aldrei fleiri bekkjarfulltrúar boðið sig fram. Við erum afar þakklát fyrir það og hlökkum til samstarfsins.
Meira ...

Upplýst börn!

06/09/17Upplýst börn!
Í gær þriðjdaginn 5. september fengu öll börn í 1. og 2. bekk í Mosfellsbæ afhend til eignar endurskinsvesti frá Heilsuvin, heilsueflandi samfélag í Mosfellsbæ í samvinnu við TM. Þetta er gjöf sem kemur í góðar þarfir þegar verkefnið gögnum í skólanum hefst formlega á morgun. Nauðsynlegt er að vera vel merktur í umferðinni nú þegar skyggja fer. Barn með endurskin sést betur í skammdeginu en hafi það ekki endurskin. Vestin eru gefin í forvarnatilgangi og eiga að nýtast hið minnsta næstu tvö árin. Það er góð regla að setja skólabarnið í vestið áður en skólataskan er sett á bakið. Hvoru tveggja á að vera jafnsjálfsagt. Tökum höndum saman og aukum öryggi barnanna okkar í umferðinni. Sjáum til þess að öll börn séu vel upplýst í skammdeginu!
Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira