logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Gjaldskrárbreytingar frá 1. janúar 2012

30/12/11

Þann 1. janúar nk. taka gildi gjaldskrárbreytingar vegna frístundasels, mötuneytis og  ávaxtabita.

 Grunngjald fyrir hverja klukkustund í frístundaseljum verður 275 kr.  Hver máltíð í mötuneytisáskrift mun kosta 310 kr.  Ávaxtabiti mun kosta 100 kr. á dag.

 Allar nánari upplýsingar um þessar breytingar er að finna á heimasíðu skólans og heimasíðu Mosfellsbæjar.

 

Allar breytingar er varða vistunartíma eða skráningu í mötuneyti eða ávaxtabita fara fram á íbúagáttinni.

Meira ...

Litlu jólin í eldri deild

21/12/11

Des20 074Jólaskemmtun var haldin í eldri deild skólans mánudagskvöldið 19.desember. Prúðbúnir nemendur mættu til umsjónarkennara síns klukkan sjö og áttu notalega stund í stofunni sinni ásamt bekkjarfélögum sínum. Bekkirnir höfðu skipulagt mismunandi dagskrá hver með sínum kennara. Sumir voru með matarhlaðborð og fóru í leiki eða spil og aðrir fóru í pakkaleiki eða ljóstruðu upp um leynivini sína. Að þessari stund lokinni var dansað í kringum jólatréð á sal skólans undir píanóleik Kára tónmenntakennara. Því næst voru skemmtiatriði á sal. Margir nemendur stigu á stokk og má þar nefna Andreu í 10. bekk og Brynhildi í 9. bekk sem báðar sungu falleg lög og Einar einstaka, töframann úr 10. bekk, sem sýndi ýmis töfrabrögð og kenndi skólafélögum sínum nokkur þeirra. Magnús í 8. bekk lék á píanó, og tvær stelpur í 8. bekk spiluðu á blásturshljóðfæri. Einnig sýndu tvær stúlkur úr 7. bekk skemmtilegan dans. Þegar þessu var lokið var slegið upp balli og dansað til klukkan tíu en þá fóru nemendur sælir heim í jólafrí eftir vel heppnað og skemmtilegt kvöld.

Myndir frá jólaskemmtuninni má sjá á myndasíðu skólans.

Meira ...

Starfsfólk Varmárskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs

20/12/11

IMG_6606 (800x533)

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Skólinn hefst aftur eftir jólafrí fimmtudaginn 5.janúar. Við hlökkum til að hitta ykkur hress og kát á nýju ári.

Meira ...

Litlu jólin í yngri deild Varmárskóla

20/12/11

litlu_jolin2_des11 170 (800x600)

Litlu jólin voru haldin þriðjudaginn 20.desember. Nemendur mættu á hefðbundnum tíma og átti hver bekkur notalega stund með sínum kennara. Að því loknu tóku nemendur þátt í skipulagðri jóladagskrá á sal skólans.

Nemendur í 5. bekk sáu um helgileik eins og hefð hefur verið fyrir undanfarin ár. Mikið fjör var á jólaskemmtuninni og var það Svanný danskennari sem kom krökkunum í rétta jólaskapið. Skólakórinn söng ásamt Kára Friðrikssyni tónmenntakennara og hópur nemenda spilaði á blokkflautur. Að lokum var dansað í kringum jólatréð ásamt tveimur hressum jólasveinum sem lögðu leið sína í skólann.

 

Fleiri myndir frá jólaskemmtuninni má sjá á myndasíðunni undir fyrirsögninni Litlu jólin í yngri deild.

Meira ...

Litlu jólin í 2. bekk

20/12/11

2.bekkur_litlu_jolin (3) (800x600)Börnin skemmtu sér vel á litlu jólunum. Þau dönsuðu í kringum jólatréð, horfðu á helgileik og hlustuðu á skólakórinn. Þau horfðu á myndina Engin jól án Bassa, gæddu sér á smákökum og  spiluðu ýmis spil. Skemmtilegur dagur. Fleiri myndir á myndasíðunni.

Meira ...

Jólin koma !

19/12/11

1b_piparkokugerd_des11 (2)Nemendur í 1. BI skreyta piparkökur fyrir „Litlu jólin". Sjá myndir á myndasíðunni.

Meira ...

Jólatónleikar skólakórs Varmárskóla

18/12/11

jolatonleikar (800x533)Fimmtudaginn 15.desember hélt skólakór Varmárskóla jólatónleika sína undir stjórn Guðmundar Ómars kórstjóra. Með kórnum söng einsöng Kári Friðriksson tenór og tónmenntakennari við skólann. Allir meðlimir komu fram með einum og öðrum hætti fyrir fullu húsi. Í lok tónleikanna sungu allir saman Heims um ból.

Meira ...

Varmárskóli er þátttakandi í Comeniusarverkefninu „Communication is an art“.

16/12/11

comeniusarferdDagana 28.nóvember – 2.desember fóru tveir nemendur úr 10.bekk  þau Björn Bjarnarson og Alexandra Líf Benediktsdóttir  og tveir kennarar þær Jóna Dís Bragadóttir og Guðlaug Ósk Gunanrsdóttir í Comeniusarferð til Malmö í Svíþjóð. 

Meira ...

9-KÁ í útistofunni Vin

14/12/11

9KA_utieldhus (7) (800x600)Þriðjudaginn 13. desember fóru krakkarnir í 9. KÁ í heimsókn í útikennslustofuna Vin ásamt umsjónarkennara sínum. Guðrún Sigurðardóttir tók á móti krökkunum og bauð þeim upp á heitt kakó. Krakkarnir settust í kringum eldinn og hlustuðu á Guðrúnu lesa jólasögu á meðan. Að því loknu var farið í skemmtilegan plankaleik sem er mun erfiðari en ella í snjónum. Fleiri myndir á myndasíðunni.

Meira ...

3. bekkur átti notalega jólastund í Vin

08/12/11

3b_j¢lastund_11 (27)Fimmtudaginn 8. desember átti 3. bekkur notalega jólastund í útikennslustofunni. Guðrún las fyrir okkur jóasögur, við löbbuðum í kringum eldinn og sungum jólalög og fengum okkur svo kakó og smákökur. Að lokum fengu allir að leika sér. Fleiri myndir eru á myndasíðunni.

Meira ...

Síða 1 af 12

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira