logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

Varmártíðindi - fréttablað Varmárskóla komið út

15/06/15Varmártíðindi - fréttablað Varmárskóla komið út
Varmártíðindi, fimmta tölublað og jafnframt það síðasta á þessu skólaári er komið út. Í blaðinu má lesa það helsta sem bar af í skólastarfinu á vorönninni. Blaðið má finna hér.
Meira ...

Eggjastuð hjá 6. bekk

12/06/15Eggjastuð hjá 6. bekk
Á hverju ári hafa nemendur í 6.bekk Varmárskóla tekið þátt í vísindaverkefninu ,, Eggjastuð“. Verkefnið felur í sér að pakka tveimur hráum hænueggjum inn í sömu pakkningu þannig að hægt sé að henda þeim fram af svölum án þess að þau brotni. Þetta er hópavinna og aðferðin við að pakka eggjunum er algjörlega frjáls.
Meira ...

Karnivalstemning á skólaslitum

10/06/15Karnivalstemning á skólaslitum
Miðvikudaginn 10. júní voru skólaslit í Varmárskóla og að því tilefni var svokölluð karnivalstemning á skólalóðinni. Eins og sjá má á myndunum var ýmislegt skemmtilegt í boði og höfðu flestir gaman af.
Meira ...

Útskrift 10. bekkjar

10/06/15Útskrift 10. bekkjar
Þriðjudaginn 9. júní voru nemendur 10. bekkjar útskrifaðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Að venju var stundin afar hátíðleg og salurinn þétt setinn. Nokkrir nemendur stigu á stokk og fluttu tónlistaratriði auk þess sem Skólakór Varmárskóla söng nokkur lög. Þórhildur Elfarsdóttir skólastjóri flutti hátíðarræðu auk þess sem Sólveig Franklínsdóttir formaður foreldrafélagsins sagði nokkur orð.
Meira ...

Félagsvist í 8. bekk

09/06/15Félagsvist í 8. bekk
Síðasta skóladaginn í vor spiluðu nemendur í 8. bekk saman félagsvist en kennarar þeirra ákváðu að kenna þeim spilið auk þess sem tveir bekkjanna höfðu þegar fengið kennslu á foreldrakvöldi. Spilið gekk vonum framar og krakkarnir skemmtu sér vel. Stefnan er svo að halda áfram spilamennskunni þegar tækifæri gefst næsta skólaár.
Meira ...

Útivistardagar og skólaslit

08/06/15Útivistardagar og skólaslit
Mánudaginn 8. júní og þriðjudaginn 9. júní eru útivistardagar hjá nemendum Varmárskóla. óhefðbundið skólastarf tekur við þessa daga og nemendur eru meira og minna í vettvangsferðum. Skóladagur nemenda lýkur kl. 13:00 þessa daga. Skólaslit 10.bekkja fara fram í sal eldri deildar þriðjudaginn 9.júní kl. 19:30. Skólaslit 1. - 9.bekkja fara fram miðvikudaginn 10. júní.
Meira ...

Víkingar og Rokksafnið

08/06/15Víkingar og Rokksafnið
Nemendur í 5. bekk hafa verið að læra um víkinga í vetur. Af því tilefni var farið í heimsókn í Víkingaheima í Reykjanesbæ. Þjóðháttafræðingur tók á móti hópnum og fræddi nemendur um lifnaðarhætti víkinga og siglingar þeirra. Einnig var farið í Rokksafnið þar sem hægt var að prófa karókí og ýmis hljóðfæri. Að því búnu hélt hópurinn í Skessuhellinn, heilsaði upp á skessuna og fékk sér nesti á túninu í blíðskaparveðri.
Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira