logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Áríðandi tilkynning til foreldra

06.03.2013 13:02

Áríðandi tilkynning til foreldra skólabarna og starfsmanna skóla á höfuðborgarsvæðinu frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og almannavörnum.

"Börnin ykkar eru örugg í skólunum. Vinsamlegast reynið ekki að komast á bílum til þess að sækja þau fyrr en lögregla hefur gefið út tilkynningu þar að lútandi.
Allir björgunaraðilar á svæðinu eru á ferðinni og einkabílar í umferðinni eru til mikilla trafala."

Varmárskóli sendir nýjan tölvupóst til foreldra og setur frétt á heimasíðu þegar lögregla hefur sent frá sér tilkynningu. Frístundasel skólans er opið í dag en verður í skólanum (ekki í selunum).

Rútur fara ekki í Mosfellsdal eða í Leirvogstungu. Rútur fara í Byggðirnar en foreldrar þurfa að láta vita ef þeir vilja EKKI að börnin þeirra taki rútu. Athugið að börnin þurfa að ganga vegspotta frá rútum að heimili.

Gott er ef foreldrar geta sameinast um að sækja börn í skólann til að létta á álagi en ekki er ráðlegt fyrir fólk að koma úr bænum þar sem allt er stopp á leið upp í Mosfellsbæ.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira