logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fundir með foreldrum

14.03.2018 16:39

Fundir með foreldrum hafa verið haldnir í Varmárskóla undanfarið. Í janúar var stór fundur með foreldrum fimmtu bekkja þar sem farið var yfir málefni er tengjast agamálum og skólabrag. Í lok febrúar var haldinn fundur með nokkrum foreldrum þar sem ýmis málefni Varmárskóla voru rædd. Þar var meðal annars lagt upp með að halda fundi í öllum árgöngum eins og kostur væri. Frá janúar hefur verið fundað með foreldrum í 5. - 9. bekk. Foreldrar tíunda bekkja funda að morgni 15. mars og eftir páskafrí mun fundarherferð halda áfram. Almennt er rætt um málefni árgangsins, líðan og skólabrag. Fundir hafa gengið vel og foreldrar verið áhugasamir og sýnt skólastarfinu mikinn áhuga. 

Hér má sjá glærur og fundargerð frá fundi foreldra í lok febrúar.

Hér má sjá:

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira