logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Varmárskóli er þátttakandi í Comeniusarverkefninu „Communication is an art“.

16.12.2011 13:23

comeniusarferdDagana 28.nóvember – 2.desember fóru tveir nemendur úr 10.bekk  þau Björn Bjarnarson og Alexandra Líf Benediktsdóttir  og tveir kennarar þær Jóna Dís Bragadóttir og Guðlaug Ósk Gunanrsdóttir í Comeniusarferð til Malmö í Svíþjóð. 
Tilgangur ferðarinnar var að taka þátt í verkefninu „Communication is an art“,  en skólinn fékk styrkt til að taka þátt í þessu verkefni.
Þetta er tveggja ára verkefni og taka sjö lönd þátt, en þau eru Tyrkland, Ítalía, Spánn, Pólland, Þýskaland, Svíþjóð og Ísland.    

Í Malmö hittust fulltrúar frá öllum löndum, nemendur og kennarar og unnið var með leiki og leiklist.  Nemendur Varmárskóla stóðu sig frábærlega og var sérstaklega rætt um það hversu góðir fulltrúar þau væru. 
Þetta er fjórða ferðin sem farin er, en næsta ferð verður í apríl og þá verður farið til Þýskalands, í maí kemur hópurinn síðan til Íslands.  Alls eru þetta um 70 manns, kennarar og nemendur.

Jóna Dís, Guðlaug Ósk, Björn og Alexandra Líf

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira