logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Glæsileg úrslit í Stóru upplestrarkeppninni í Mosfellsbæ

24.03.2017

Fimmtudaginn 23. mars fór lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Mosfellsbæ fram í hátíðarsal Lágafellsskóla. Varmárskóli fór með sigur af hólmi annað árið í röð en Sigríður Ragnarsdóttir úr 7. TH hlaut fyrstu verðlaun. Í öðru sæti varð svo Rebekka Sunna Sveinsdóttir úr 7. AÁ einnig úr Varmárskóla.  Í þriðja sæti var Harpa Dís Hákonardóttir úr Lágafellsskóla.  Aðrir keppendur Varmárskóla voru þau  Andri Eyfjörð Jóhannesson, Ásdís Rán Kolbeinsdóttir og Hermann Þór Þórarinsson.

Gestir fengu að hlusta á keppendur flytja brot út sögunni Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason og ljóð eftir  Steinunni Sigurðardóttur auk þess sem nemendur fluttu sjálfvalin ljóð.  Skólakór Varmárskóla söng nokkur lög og Íris Torfadóttir nemandi í 7. TH Varmárskóla lék á fiðlu. Við í Varmárskóla óskum öllum krökkunum bæði úr Varmárskóla og Lágafellskóla innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum fyrir ánægjulegt kvöld.















Þær Aldís Leoní Rebora 7. AÁ og Embla Rún Pétursdóttir 7. LJ hlutu viðurkenningar fyrir myndskreytingar á dagskrá keppninnar.

Myndir frá hátíðinni má sjá hér

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira