logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Forritunarkeppni grunnskólanna

07.03.2017 11:40
Tækniskólinn heldur Forritunarkeppni grunnskólanna 1. apríl 2017. Keppnin er opin öllum grunnskólanemendum sem hafa áhuga á forritun og er þetta í annað skipti sem þessi keppni er haldin.

Til þess að undirbúa keppendur sem best, munu nemendur og kennara Tækniskólans, halda forritunarbúðir laugardaginn 11. mars frá kl. 10:00-16:00  í Vörðuskóla.  Forritunarbúðirnar eru góður undirbúningur fyrir forritunarkeppnina og er skráning í forritunarbúðirnar á: www.kodun.is 

Enginn kostnaður er við að taka þátt í forritunarbúðunum né forritunarkeppninni.  Allar nánari upplýsingar er að finna á www.kodun.is eða hjá undirritaðri.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Guðrún Randalín Lárusdóttir
Skólastjóri Upplýsingatækniskólans
grl@tskoli.is / 514 9351

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira