logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Útskrift 10. bekkjar

10.06.2015 10:26
Þriðjudaginn 9. júní voru nemendur 10. bekkjar útskrifaðir við hátíðlega athöfn á sal skólans. Að venju var stundin afar hátíðleg og salurinn þétt setinn. Nokkrir nemendur stigu á stokk og fluttu tónlistaratriði auk þess sem Skólakór Varmárskóla söng nokkur lög.

Þórhildur Elfarsdóttir skólastjóri flutti hátíðarræðu auk þess sem Sólveig Franklínsdóttir formaður foreldrafélagsins sagði nokkur orð. Einnig fluttu þær Júlíanna og Sif, útskrifarnemendur úr 10.HK ræður fyrir hönd nemenda og færðu starfsfólksins veglega kaffikönnu að gjöf í þakklætisskyni fyrir samveruna á liðnum árum. Kunnum við nemendum kærar þakkir fyrir. 

Nokkrir nemendur hlutu verðlaun fyrir góðan námsárangur en Davíð Sindri úr 10.HMH hlaut hæstu einkunn við útskrift á þessu skólaári. Að verðlaunaafhendingunni lokinni voru nemendum afhent brautskráningarskírteini sín og umsjónarkennarar færðu nemendum sínum rósir. Foreldrafélagið sá svo um veglegt kaffihlaðborð í lok kvöldsins. Við óskum þessum glæsilegu krökkum öllum innilega til hamingju með áfangann og óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Hér má sjá myndir frá útskriftinni.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira