logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla 24. apríl 2024

24.04.2024 14:20

Þó að þetta hafi bara verið þriggja daga vika var hún samt mjög viðburðarík. Á mánudaginn var Vinaliðapartý. Vinaliðar eru valdir af samnemendum úr 4., 5. og 6.bekk og hafa það hlutverk að standa fyrir leikjum í frímínútum í ákveðinn tíma. Við upphaf tímabils er námskeið þar sem krakkarnir læra allskonar leiki og við lok hvers tímabils er haldið uppskerupartý þar sem vinaliðarnir sjálfir fara í leiki og fá smá glaðing.

Á þriðjudag buðu nemendur í 3.bekk foreldrum sínum á heimkomuhátíð. Þeir hafa undanfarnar vikur unnið verkefni um geiminn sem lauk svo með ferðalagi til Mars þar sem allir höfðu mismunandi hlutverk til að halda samfélaginu gangandi. Í gær var því svo fagnað að allir hefðu komist heilir heim.

Þá var líka ævintýradagurinn mikli hjá 4.bekk. Eitt af þemunum sem þau höfðu verið að vinna með í vetur var um eldgos. Vinnan gekk mjög vel og þau lögðu mikið á sig og söfnuðu meðal annars fyrir ferð til Vestmannaeyja til að fræðast meira. Þar fóru þau í Eldheima, Sæheima og í Herjólfsbæ auk þess sem þau skoðuðu bæinn og léku sér. Þau fengu auðvitað dygga aðstoð frá kennurunum sínum og frá foreldrum sem hjálpuðu þeim við allskonar: vöfflusölu, myndlistarsýningu og dósasafnanir. Veðrið lék við hópinn og það má mikið vera ef þetta verður ekki einn af eftirminnilegri dögum á skólagöngu þessa hóps.

Í dag er svo skertur dagur hjá 3.-6. bekk en allt eins og venjulega hjá 1. og 2.bekk. Þetta er vegna námsferðar starfsfólks til London. Þar ætlum við að fræðast og skoða skóla sem hafa sérhæft sig í leiðsagnarnámi. Dagskrá skólaheimsóknanna verður bæði á fimmtudag og föstudag og næsti skóladagur nemenda er mánudagurinn 28.apríl.

Hafið það gott þangað til

Kv

Starfsfólkið í Varmárskóla

Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira