logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla 29. september 2023

29.09.2023 15:15

Nú eru allir haustfundir árganga búnir og við þökkum foreldrum fyrir komuna. Það er mikilvægt að við sem störfum með börnunum og foreldrar þeirra eigum í góðu samstarfi. Þátttaka foreldra í námi barna sinni er ómetanleg því þegar þau vinna með foreldrum, eða öðrum fullorðnum, heima hafa þau aðgang að einkakennara sem veitir þeim fulla athygli meðan þau lesa, skrifa eða velta fyrir sér einhverjum spurningum.  Mínútunum sem fara í heimanámið er því mjög vel varið þegar til framtíðar er litið.

Eins viljum við hvetja ykkur til að nota öll möguleg tækifæri til að efla málþroska barnanna ykkar og það gerir maður helst með því að tala við þau og vanda sig að nota sjálfur fjölbreyttan orðaforða. Það skapast allskonar ,,biðtími” í daglega lífinu sem frábært er að nota í þetta.

Við erum sífellt að vinna að því að nemendur okkar læri hvernig maður getur haft áhrif og komið skoðunum sínum á framfæri með kurteislegum hætti og að þeir læri að málefnaleg samræða er líkleg til að leysa flókin vandamál. Í dag fengum við heimsókn frá ,,Friðarhlaupinu” sem er alþjóðlegt kyndilboðhlaup sem hefur það að markmiði að auka umræður um frið í heiminum. Okkur fannst tilvalið að taka þátt í þessu og sýna nemendum þannig að í lífinu fyrir utan skólann er líka fólk sem vinnur að því að vekja athygli á mikilvægum málefnum og gerir það með friðsamlegum hætti.

Svo fylgir hér með að lokum smá gleðisprauta frá söngstund þriðja bekkjar á miðvikudaginn. youtube

Hafið það gott um helgina

Starfsfólkið í Varmárskóla

Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira