logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla

24.02.2023 13:03

Þetta er búin að vera viðburðarík vika hjá okkur. Spenningurinn fyrir öskudegi var talsverður á þriðjudag og svo brast á með allsherjargleði á sjálfan miðvikudag. Nánast allir mættu í búningum og litríkir karakterar voru um alla ganga. Ekki spillti svo fyrir að á matseðlinum var pizza frá Dóminós. Við náðum að setja nokkur myndbönd inn á facebook-síðuna okkar til að gefa ykkur sýnishorn af stemmingunni þegar verið var að slá köttinn úr tunnunni. Hér er svo smá myndbandsbútur af öskudagsballinu. https://youtube.com/shorts/CTguWE3Tg2o?feature=share Skipulag dagsins var þannig að allir árgangar fengu bæði að fara í íþróttahúsið að slá köttinn úr tunnunni og svo öskudagsball undir stjórn Írisar danskennara í salnum.

Nú starfsfólk Heiðarskóla í Hvalfjararsveit kom svo í heimsókn til okkar í gær, til kynna sér skólastarfið hjá okkur. Það er alltaf gaman að fá gesti sem hafa áhuga á starfinu okkar.

Vikunni lauk svo með því að Einar Mikael, töframaður, kom í heimsókn og sýndi öðrum bekk listir sínar. Hann lagði líka mikla áherslu á að með því að æfa sig og trúa á sjálfan sig gætu allir látið drauma sína rætast. Hér er smá sýnishorn af gleðinni á töfrasýningunni. https://youtu.be/Rq8SvbKmLyI

Það er líf og fjör hjá okkur alla daga og við elskum það.

Hafið það gott um helgina

Starfsfólkið í Varmárskóla

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira