logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla

06.05.2022 14:47

Þeir eru sumir hryssingslegir, vordagarnir, og enn þarf að gæta þess að börn séu klædd þannig að þau geti tekið þátt í útiveru án þess að verða mjög kalt. En af sama meiði er rétt að geta þess að við erum hreinlega að drukkna í óskilamunum. Litla anddyrið sem við höfum safnað fötum í er orðið fullt og erfitt er fyrir börn að leita að fötum þar. Við yrðum mjög þakklát ef foreldrar kæmu og tækju það sem tilheyrir börnum þeirra.

Við erum nú að vinna í maí-skipulaginu, setja niður ferðir og annað uppbrot í skólastarfinu. Það er þó alltaf smá snúið að skipuleggja slíka atburði langt fram í tímann á Íslandi en um leið og ákvarðanir hafa verið teknar senda kennarar þær á foreldra.

4.bekkur æfir nú af kappi fyrir ,,Litlu upplestrarhátíðina”. Generalprufa verður á miðvikudaginn, þá verða nemendur 3.bekkjar áheyrendur og aðal-hátíðin verður svo fimmtudaginn 12.maí klukkan 8.30 á sal skólans. Þangað er foreldrum boðið. Við hlökkum mikið til að heyra hvað krakkarnir hafa verið duglegir að æfa sig.

Hafið það gott um helgina

Kveðja

Starfsfólk Varmárskóla

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira