logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Foreldraviðtöl færð á rafrænt form

01.11.2021 14:07

Eins og staðan er í Covid smitum hjá okkur núna þorum við ekki öðru en byrja aftur að takmarka umferð um skólann, nokkrir nemendur eru veikir og fleiri í sóttkví. Þá eru margir í smitgát og aðrir eru heima vegna aðstæðna. 9 starfsmenn eru frá vegna covid, sumir veikir og aðrir í sóttkví.

Vegna þessarar stöðu munum við færa foreldraviðtöl morgundagsins yfir á rafrænt form. Þið munuð fá póst frá umsjónarkennurum með hlekk til að komast á fundina.

Nokkrir af umsjónarkennurunum okkar eru einnig veikir eða í sóttkví og geta ekki tekið sín viðtöl á morgun. Þeir sem það á við um munu einnig senda póst og þegar staðan batnar munum við setja upp foreldrafundi hjá þeim.

Við hjálpumst að við að láta þetta ganga og halda úti eins góðu starfi og unnt er við þessar aðstæður.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira