logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Stóra upplestrakeppnin í Mosfellsbæ 2021

20.05.2021 14:35

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Mosfellsbæ var haldin í Lágafellsskóla þann 18. maí. Þar kepptu til úrslita 11 nemendur úr 7. bekk í þremur grunnskólum Mosfellsbæjar, Helgafellsskóla, Lágafellsskóla og Varmárskóla.

Úrslit urðu þau að Ingi Ragnar Ingason í Lágafellsskóla varð í fyrsta sæti, Karólína Björg Árnadóttir í Varmárskóla varð í öðru sæti og Farah Mehica í Helgafellsskóla varð í þriðja sæti.

Keppendur lásu brot úr sögunni „Kennarinn sem hvarf“ eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk. Auk þess lásu keppendur ljóð sem þeir völdu sjálfir.

Nemendur í Listaskóla Mosfellsbæjar sáu um tónlistarflutning.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira