logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Líf og fjör á þemadögum

31.10.2019 08:55

Það var líf og fjör í skólanum okkar á þemadögum þar sem yfirskriftin var Vísindi og tækni. Það er óhætt að segja að allir hafi fengið eitthvað við sitt hæfi. Börnin ykkar voru til fyrirmyndar og komu að sjálfsögðu að undirbúningi. Við lítum svo á að þemadagar gefi okkur tækifæri til að brjóta upp hefðbundið skólastarf með því að horfa vítt og breytt á lífið og tilveruna, framtíðina og fortíðina og síðast en ekki síst að ýta undir, lýðræði og jákvæðan skólabrag. Nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn eru sammála um að vinnan þessa daga hafi verið einstaklega, fjölbreytt,  lærdómsrík og skemmtileg og  gildin okkar svo sannarlega verið höfð að leiðarljósi – Virðing – Jákvæðni - Framsækni - Umhyggja.

Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira