logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Bókaverðlaun barnanna 2019

20.03.2019 08:59

Nú stendur yfir kosning um hvaða barnabók, gefin út árið 2018, hlýtur Bókaverðlaun barnanna 2019. Á bókasafni yngri deildar hangir uppi veggspjald sem sýnir allar þær bækur sem kjósa má um. Það er hægt að fá kjörseðla á bóksafninu, og þangað má líka skila þeim. Svo er líka hægt að kjósa á vef Borgarbókasafnsins, www.borgarbokasafn.is , og stendur kosning yfir til 15. apríl. Gaman væri ef sem flestir nemendur nýttu þetta tækifæri til að kjósa uppáhaldsbækurnar sínar frá síðasta ári.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira