logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar skólaárið 2019-2020

08.03.2019 15:27

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2019-2020 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2019 fer fram frá 10. mars til 30. mars.

Innritun í frístundasel og mötuneyti 6 ára barna og nýrra nemenda vegna skólaársins 2019-2020 verður auglýst sérstaklega síðar.

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. I nnritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að sækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl. Umsóknir fyrir nýtt skólaár endurnýjast ekki sjálfkrafa. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.

Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita grunnskólarnir. Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.


Fræðsluskrifstofa Mosfellsbæjar
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira