logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Hildur Knútsdóttir kemur og les fyrir 9.og 10. bekk úr bók sinni Ljóniðmiðvikudaginn 12.desember.

05.12.2018 12:37
Ljónið er fyrsta bók í nýjum þríleik; hörkuspennandi ungmennasaga sem gerist í Reykjavík samtímand en teygir anga sína aftur til ógnvekjandi atburða í fortíðinni.

Kría er að byrja í MR. Þar þekkir hún engan og enginn veit um það sem gerðist á Akureyri. Nú fær hún tækifæri til að byrja upp á nýtt. En þegar Elísabet finnur gamalt skrín í földum skáp þá fer Kría og vinkona hennar að rannsaka undarlegt mál stúlku sem hvarf sporlaust árið 1938. Og brátt kemur í ljós að hvarf stúlkunnar gæti haft óvænta tengingu við líf Kríu

Þegar Elísabet finnur gamalt skrín í földum skáp fara þær Kría að rannsaka undarlegt mál stúlku sem hvarf sporlaust fyrir 79 árum. Kría hittir líka hinn dularfulla Davíð sem kemur og fer eins og kötturinn. Brátt kemur svo í ljós að hvarf stúlkunnar gæti haft óvænta tengingu við líf Kríu.

Hildur Knútsdóttir sló rækilega í gegn með bókum sínum Vetrarfrí og Vetrarhörkur sem þýddar hafa verið á fjölmörg tungumál og verið er að gera sjónvarpsþáttaröð eftir. Fyrir þá fyrri fékk Hildur Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir þá síðari.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira