logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Þitt eigið tímaferðalag

22.11.2018 09:56
Mánudaginn 10. desember kemur Ævar vísindamaður í heimsókn. Hann ætlar að hitta 7. og 8. bekk og lesa úr nýjustu bókinni sinni, Þitt eigið tímaferðalag. Hann kemur aftur daginn eftir og les þá fyrir 3.-6.bekk.

Þessi bók er öðruvísi en aðrar bækur. Lesandinn er söguhetjan og ræður ferðinni. Hann getur valið um að hitta víkinga, Rómverja eða risaeðlur? Athugað hvað er um að vera á Jörðinni eftir 100 ár? Hvað með 1000? Hann þarf bara að passa týna ekki tímavélinni til að hann komist örugglega heim aftur!

Lesandinn ræður hvað gerist og velur sinn eigin endi.

Þetta er fimmta bókin í þessum vinsæla bókaflokki. Fyrri bækurnar hafa hlotið bæði Bókaverðlaun barnanna og Bóksalaverðlaunin, og verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira