logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja
20.03.2018 21:16

Í kvöld fór Stóra upplestrarkeppnin fram hjá 7.bekk. Keppnin var haldin í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Til keppni mættu hæfileikaríkir upplesarar frá Lágafellsskóla og Varmárskóla. Keppendur Varmárskóla voru: Nanna Björt Ívarsdóttir 7. ÁB, Guðrún Embla Finnsdóttir 7. ÁB, Linda Rós Pétursdóttir 7. KÁ, Tómas Berg Þórðarson 7. HH og Ísold Emma Ívarsdóttir 7. KH.

Upplesarar stóðu sig vel en í lokin stóðu þrír eftir sem sigurvegarar kvöldins. Tómas Berg Þórðarson í 7.HH Varmárskóla hreppti fyrsta sætið, annað sætið fór til Emmu Óskar Gunnarsdóttur Lágafellsskóla og þriðja sætið hlaut Guðrún Embla Finnsdóttir 7.ÁB Varmárskóla.

Við óskum sigurvegurum innilega til hamingju.

Myndir frá kvöldinu má sjá á hér.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira