logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja
02.02.2018 15:38

Undanfarnar vikur höfum við verið að innleiða umgengniskerfi í yngri deild. 

Í anda Uppbyggingarstefnunnar byggjum við þessa vinnu á jákvæðum og uppbyggilegum nótum. Markmiðið er að bæta umgengni í skólanum og skólabraginn í heild sinni, að allir viti hvert hlutverk sitt er. Einnig erum við að skilgreina hvað telst græn (æskileg) hegðun, gul hegðun (sem er aðvörun) eða rauð hegðun (sem er þá orðin ögrun eða ofbeldi). Þetta höfum við gert á einfaldan hátt og myndrænan. 

Reglurnar eru orðnar fjórar:  
- Útiskór geymdir í anddyri, ekki fara inn á þeim. 
- ganga frá útiskóm og úlpum á rétta staði
- setja rusl í ruslafötur (ekki á gólf eða undir borð).
- símar ofan í töskum. 

Kennarar hafa innleitt hverja reglu fyrir sig í sínum bekk. Nokkrar reglur bíða okkar, eins og ljótt orðbragð, fara ekki eftir fyrirmælum og trufla í kennslustund. Í næstu viku er hlutverk starfsfólks að festa þessar reglur í sessi og ganga eftir því að nemendur virði sitt hlutverk. 

Margir kennarar hafa haft orð á því að þeir finni fyrir aukinni ró í bekknum, þar sem hlutverkin eru skýr og einföld.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira