logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Laus störf

03.04.2017 13:13
Laus störf nú þegar við Varmárskóla

  • Grunnskólakennari óskast í 4.bekk vegna forfalla (út þetta skólaár)

Um er að ræða umsjónarkennslu í 4.bekk og kennslu í 2. og 3.bekk samtals 26 kest

  • Stærðfræðikennari óskast í unglingadeild til vors (tímabundið). Um er að ræða 20 kest en hægt að bæta við fleiri tímum ef óskað er eftir.
  • Stuðningsfulltrúar og frístundaleiðbeinendur
Okkur vantar stuðningsfulltrúa og frístundaleiðbeinendur, hægt er að taka báðar stöðurnar og vera 100% en einnig er hægt að skoða hlutastöður.
  • Skólaliði vantar í Brúarland til að sinna gæslu nemenda, þrifum og aðtoð við mötuneyti. Um er að ræða 100% starf þar sem viðkomandi sinnir nemendum í frístundaseli til kl. 16:00. 
  • Aðstoðarmatráður í mötuneyti nemenda 60-70% staða


Lausar stöður næsta skólaár 2017-2018

Kennarar óskast á unglingstig,miðstig og yngsta stig. M.a. er óskað eftir kennurum með sérhæfingu í  íslensku, stærðfræði, náttúrufræði, tónmennt og dans.

Forstöðumaður frístundasels – tómstundafræðingur óskast

Leitað er að félags- og tómstundafræðingi til að stýra frístundaseli Varmárskóla. Viðkomandi hefur yfirumsjón með tveimur starfstöðvum frístundasels og ber faglega ábyrgð. Viðkomandi kemur einnig að skipulagi og utanumhaldi vinaliðaverkefnis og útifrímínútna skólans.


Stöður stuðningsfulltrúa og frístundaleiðbeinenda

Okkur vantar hressa aðila í góðan starfshóp Varmárskóla. Leitum að drífandi, heilsuhraustu fólki til að vinna með nemendum okkar í leik og starfi. Skoðum allar umsóknir frá 18 ára og eldri. Fjölbreytt menntun og starfsreynsla er kostur.

Upplýsingar veita Þóranna Rósa Ólafsdóttir og Þórhildur Elfarsdóttir skólastýrur í síma 525 0700 eða 899 8465 / 863 3297.Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið thoranna(hjá)varmarskoli.is eða thorhildur(hja)varmarskoli.is

Umsóknarfrestur er til 06. apríl 2017.

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um. 



Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira