logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Ungt fólk - Kynningarfundir fyrir foreldra

10.10.2016 09:34

Kynningafundir á niðurstöðum könnunar sem Rannsókn og greining gerði á lýðheilsu nemenda úr 8. -10. bekk og fram fór í grunnskólunum á vorönn 2016. Kynntar verða niðurstöður varðandi líðan nemenda í skóla, samskipti, samveru við foreldra, svefnvenjur, tölvunotkun, áfengis og fíkniefnaneyslu og fleira er áhrif hefur á almenna lýðheilsu og vellíðan ungmenna.

Könnunin var gerð í öllum sveitarfélögum landsins á sama tíma og er það menntamálaráðuneytið sem lætur framkvæma hana. Á fundinum verða niðurstöður fyrir Mosfellsbæ í heild, höfuðborgarsvæðisins og landsins alls kynntar sem og þróun milli ára rakin.

Kynningin er ætluð foreldra barna í 5.-10. bekk svo og öðrum áhugasömum um lýðheilsu ungs fólks í Mosfellsbæ. Um kynninguna sjá Jón Sigfússon og Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Háskóla Reykjavíkur.

Fundurinn stendur í eina klukkustund og í boði verður kaffi og rúnstykki frá kl. 8.00.

Hvetjum foreldra eindregið til að mæta á annan hvorn fundinn og fá innsýn í áhrifaþætti í umhverfi barna sinna svo og aðra sem koma að vinnu og samskiptum við þennan aldurshóp.

Ungt fólk.pdf

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira