logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Opið hús Skólaskrifstofu. Próf og prófkvíði

25.04.2016 13:19

Kvíði er náttúrulegt viðbragð líkamans við álagi sem hjálpar okkur að takast á við aðstæður. Eðlileg spenna getur virkað hvetjandi í prófum og undirbúningi fyrir próf. Þannig getur kvíðinn virkað sem jákvæður hvati. Verði kvíðinn langvarandi eða yfirþyrmandi verður hann hins vegar hamlandi á árangur.Það er mismunandi eftir einstaklingum hversu miklum kvíða þeir finna fyrir og margir þættir sem spila þar inn í.Á þessu opna húsi ætlar Hulda Sólrún að skoða með okkur hvað foreldrar geti gert og hvað þurfa þeir að hafa í huga til að auðvelda börnum sínum að takast á við prófatímabil og óeðlilegan kvíða. Láttu þetta áhugaverða innlegg ekki framhjá þér fara, sjáumst!

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira