logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vorhátíð nemenda í 1. - 6.bekk Varmárskóla

13.03.2016 12:35

Vorhátíð YNGRI DEILDAR Varmárskóla þriðjudaginn 15. mars og miðvikudaginn 16.mars 2016

 

15. mars þriðjudagur   

SÝNINGARTÍMI BEKKIR Á SÝNINGU  (EKKI Í ATRIÐARÖÐ)

16.30 1. IE - 2. SK - 3. SJ - 5. GA - 6.EH

17.50 1. ÁIS - 2. ESi – 3. SAH – 4. ÁH – 5. ÁGM – 6. KMH

 

16. mars miðvikudagur  

SÝNINGARTÍMI BEKKIR Á SÝNINGU (EKKI Í ATRIÐARÖÐ) 

16.30 1. GAE – 3. ÞF – 4. SBT – 5. AJ – 6. JV

17.50 1. BI – 2. JE – 3. KSÓ – 4. EMH – 5. ÁJH – 6. US

 

Söngur, leikrit, dans og margt fleira skemmtilegt. 

Hver skemmtun er um klukkustund

 

Aðgangseyrir er sá sami og undanfarin ár eða 500 kr

Frítt fyrir nemendur í yngri deild. 

Foreldrar athugið að hægt er að sækja allar sýningarnar þegar einu sinni hefur verið greitt.

EKKI er gert ráð fyrir að nemendur komi inn í salinn meðan á þeirra sýningu stendur. 

 

Þeir verða inni í sínum stofum og foreldrar/forráðamenn þurfa að sækja þau þangað eftir að sýningu lýkur. 

Þetta er gert vegna þess að salurinn rúmar ekki svona marga í sæti.

Hinsvegar mega nemendur koma á aðrar sýningar en einungis í fylgd foreldra/forráðamanna og eru þar á þeirra ábyrgð.

 

Foreldrar eru beðnir að sitja út sýninguna en ekki yfirgefa salinn þegar þeirra barn hefur lokið við sitt atriði. Mikið ónæði hefur skapast af þessu og leiðinlegt fyrir þau börn sem raðast síðast að sýna fyrir hálfan sal.

 

HAPPDRÆTTI

Í lok hverrar sýningar verður dregið út eitt númer á aðgöngumiða.

 

VEITINGASALA

Að sýningum loknum og á milli sýninga verður  veitingasala, pylsur, gos, sælgæti og kaffi á vægu verði.  

 

Ekki er hægt að greiða með kortum  hvorki í miðasölu né veitingasölu. 

Allir hjartanlega velkomnir.

 

Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta. 

Kær kveðja, starfsfólk og nemendur skólans.

 


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira