logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Gjöf til barna landsins í tilefni af 60 ára afmæli Nóbelsverðlauna Halldórs Laxness

08.12.2015 16:00
Verið velkomin í Varmárskóla í Mosfellsbæ hinn 10. desember 2015 kl. 13.00.
Þann dag eru liðin 60 ár frá því Halldór Laxness veitti Nóbelsverðlaununum viðtöku.

Af því tilefni mun Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og formaður Rithöfundasambands Íslands færa börnum landsins dagskrána "Þegar lífið knýr dyra – um börn á þröskuldi fullorðinsára í verkum Halldórs Laxness" að gjöf fyrir hönd Gljúfrasteins og Radda – samtaka um vandaðan upplestur og framsögn.


Nemendur úr Varmárskóla syngja og flytja texta Halldórs Laxness.

Baldur Sigurðsson dósent mun einnig flytja erindi um texta Halldórs Laxness sem valdir
voru í heftið Þegar lífið knýr dyra.

Kaffi og meðlæti í boði Mosfellsbæjar.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira