logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Opið hús hjá Skólaskrifstofu

25.11.2015 14:55

Á öðru opna húsi vetrarins ætlar Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi frá Lausninni að fjalla um meðvirkni barna. Eru börn meðvirk? Hvernig þróast meðvirkni í uppvextinum og á hvaða hátt birtist hún þegar við verðum eldri?

Að vera meðvirkur er að eiga í erfiðleikum með samskipti eða tengsl í einhverri mynd. Þar getur verið um að ræða stjórnsemi okkar eða annarra, óöryggi í hinum ýmsu aðstæðum, ótti við að tjá raunverulegar tilfinningar og skoðanir, ótti við að segja sannleikann, kvíði fyrir samskiptum eða aðstæðum eða erfiðleikar við að koma okkur út úr skaðlegum samskiptum. Áhugavert innlegg sem á sannarlega erindi til þeirra er koma að uppeldi barna með einum eða öðrum hætti.

Opnu húsin hjá Skólaskrifstofu eru alltaf haldin síðasta miðvikudag í mánuði yfir veturinn, í Listasal Mosfellsbæjar frá klukkan 20 - 21. Athugið að gengið er inn austan megin (Háholtsmegin). Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira