logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Kennum umferðarreglurnar á netinu - fyrsta opna hús Skólaskrifstofu

26.10.2015 12:08
Fyrsta opna hús vetrarins hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar verður haldið miðvikudaginn 28. október klukkan 20 í Listasal Mosfellsbæjar

Eins og fram hefur komið, er á opnum húsum lögð áhersla á hagnýt ráð varðandi uppeldi og samskipti við börn og unglinga. Ráð sem foreldrar, systkin, amma og afi, þjálfarar, kennarar og allir þeir sem koma að uppvexti barna og unginga geta nýtt sér.

Á þessu fyrsta opna húsi vetrarins ætlar Hermann Jónsson að fjalla um umferðarreglurnar á netinu.

Það er mikilvægt að muna það að við foreldrar höfum stóru hlutverki að gegna í að tryggja öryggi barna okkar á netinu, en hvert er það hlutverk?
Hvað þurfum við að vita og hvað eigum við að kenna börnum okkar?



Hermann Jónsson starfar sem fræðslustjóri Advania og er mikill áhugamaður um netöryggi og góð samskipti á netinu sem og annars staðar.


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira