logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

sólSkólakór Varmárskóla heldur vortónleika í sal Varmárskóla þriðjudaginn 14. maí klukkan 18:00.

Um 70 – 80 börn og unglingar hafa tekið þátt í kórstarfinu í vetur sem hefur verið mjög blómlegt. Meðal  annars tók kórinn þátt í landsmóti íslenskra barnakóra sem fram fór í Kópavogi í apríl.

Á liðnum árum hefur kórinn víða komið fram bæði innan lands og utan, m.a. farið í söngferðir til Noregs, Frakklands, Danmerkur og Spánar.

Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og lífleg að vanda.
Söngstjóri er Guðmundur Ómar Óskarsson.

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira