logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Frábær árangur nemenda Varmárskóla í stærðfræðikeppni Borgarholtsskóla

28.03.2012

staerdfraedikepnni (5) (800x600)Nemendum úr 9. og 10. bekk sem höfðu áhuga á að taka þátt í stærðfræðikeppni í Borgarholtsskóla fyrir grunnskólanemendur úr Grafarvogi, Árbæ, Norðlingaholti og Mosfellsbæ bauðst að taka þátt undir dyggri leiðsögn Díönu Jósefsdóttur stærðfræðikennara. Stærðfræðikennarar við Borgarholtsskóla stóðu fyrir keppninni en tíu efstu nemendunum er boðin niðurfelling skólagjalda á fyrstu önninni ef þeir koma í Borgarholtsskóla.

Krakkarnir okkar stóðu sig að venju frábærlega en þessi sköruðu framúr og höfnuðu í verðlaunasætum:

 

9. bekkur:

10. bekkur:

1. sæti Rósborg Halldórsdóttir

6.-10. sæti Viktor Ingi Ágústsson

1.sæti Aðalbjörg Egilsdóttir

2. sæti Snædís Guðrún  Guðmundsdóttir

5. sæti Stefán Már Jónsson

 

Við óskum nemendum okkar hjartanlega til hamingju með árangurinn og Díönu Jósefsdóttur stærðfræðikennari þakkir fyrir áhuga og alúð að fylgja nemendum svona vel eftir. Einnig þökkum við öðrum stærðfræðikennurum sem hafa komið að kennslu þessara flottu nemenda og byggt upp góða stærðfræðiþekkingu og áhuga.

Á myndinni má sjá stolta verðlaunahafa ásamt Díönu Jósefsdóttur og Þórhildi Elfarsdóttur skólastýru Varmárskóla við verðlaunaafhendinguna. Fleiri myndir á myndasíðu undir stærðfræðikeppni.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira