logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Nemendur Varmárskóla í úrslit

14.11.2011 09:44

          Arnór I Guðjónsson 8LJ

Listasafn Reykjavíkur efndi til teiknisamkeppni fyrir nemendur í 7. bekk og á unglingastigi (8., 9. og 10. bekk) og hefur dómnefnd
farið yfir innsendar tillögur. Í samkeppnina bárust 68 myndverk og voru þrjátíu þeirra valin á sýningu í Hafnarhúsinu sem opnaði um helgina og stendur til ársloka. Fjögur myndverk frá nemendum Varmárskóla voru valin á sýninguna og til gamans má geta þess að þau sendu 5 verk inn. 
Markmiðið með samkeppninni er að auka skilning, þekkingu og áhuga almennings og nemenda á teikningu sem listformi. Til keppninnar var efnt í tilefni af þeim fjölbreytilegu sýningum sem nú standa yfir í Listasafninu þar sem teikningin er í forgrunni.
          Melkorka Þorkelsdóttir 9.HÍ
          Særún Magnúsdóttir 10.TH
          Sigríður Helga Grétars 10.GÓG
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira