logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Stærðfræðikeppni grunnskólanema

30.03.2011 11:18

Keppendur í tíu efstu sætunum fengu viðurkenningarskjal og verður boðin niðurfelling skólagjalda á fyrstu önninni ef þeir velja Borgarholtsskóla.  

Auk þess fær efsti keppandinn í hverjum árgangi peningaverðlaun og vasareikni.

Í keppnina fóru 18 nemendur úr Varmárskóla og í heildina voru um 180 nemendur sem tóku þátt. Óhætt er að segja að okkar nemendur hafi staðið sig mjög vel. Veitt var viðurkenning fyrir 10 efstu sætin og verðlaun fyrir efstu 3 sætin.

Í 8. bekk voru þátttakendur 71 og hæsta stigagjöf var 74 stig.

Í 9. bekk voru þátttakendur 73 og hæsta stigagjöf var 90 stig.

Í 10. bekk voru þátttakendur 34 og hæsta stigagjöf var 93 stig.

Eftirtaldir nemendur Varmárskóla komust í úrslit stærðfræðikeppninnar.

8. bekkur

Arna Karen Jóhannsdóttir í  2. Sæti  8. KÁ.

Rósborg Halldórsdóttir  3.sæti þær eru báðar í 8. KÁ.

9.bekkur

Stefán Már Jónsson í 1. Sæti

Aðalbjörg Egilsdóttir í 2.sæti

10. Bekkur

Darri Valgarðsson í 2. sæti 10. HMH

Guðmundur Garðar í 10.HMH 6.-10. sæti

Bergdís Elsa Hjaltadóttir 10. EJ 6.-10. sæti

 

Við erum stolt af krökkunum okkar og óskum þeim til hamingju með glæsilegan árangur. Það tóku talsvert færri þátt en ætluðu, þar sem keppnin var á sama tíma og forvarnardagurinn.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira