logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

16.03.2011 12:46

Keppnin er nú haldin í 12. sinn í Mosfellsbæ. Í Stóru upplestrarkeppninni taka nemendur úr 7. bekk þátt í upplestri og hafa þau verið að æfa sig frá 16. nóvember en þá hófst keppnin á degi íslenkrar tungu.

Markmið upplestrarkeppni í 7. bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Þátttakendur í lokahátíð keppninnar eru 5 bestu lesarar úr hvorum skóla. Nemendur leggja mikinn metnað í framsögn og framkomu og er því hátíðin hin glæsilegasta. Skáld keppninnar að þessu sinni eru Gunnar M. Magnúss og Hulda – Unnur Benediktsdóttir Bjarklind. Einnig flytja nemendur ljóð að eigin vali.

Lið Varmárskóla eru: Alexander og Bernhard úr 7.GS, Kristófer 7.LJ, Magnús Þór og Sara Katrín úr 7.AÞ. Varamaður er Unnar Karl 7.LJ

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira