logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir

Hrekkjarvökuball

04/11/11

Hrekkjarv”kuball (6) (800x564)Fimmtudaginn 27. október sl. var haldið Hrekkjavökuball í eldri deild skólans fyrir nemendur í 7. - 10. bekk. Nemendur í nemendafélaginu sáu um að skreyta skólan og nemendur í 10. bekk höfðu útbúið mjög svo hryllilegt draugahús sem vakti mikla lukku. Mjög góð mæting var á ballið og voru nemendur duglegir að mæta í mis hryllilegum búningum eins og myndirnar bera með sér.

Meira ...

4. JV í útitíma.

03/11/11

4jv_utikennsla_nov11 (20)Í dag fimmtudaginn 3. 11. fóru nemendur í 4. JV í útikennslustofuna Vin. Þar unnu börnin verkefni, fóru í ratleik þar sem þurfti að svara spurningum úr íslensku, stærðfræði, náttúrufr. og samfél. og útbjuggu samlokur sem voru grillaðar á eldinum.

Að lokum komu allir saman og drukku heitt kakó og gæddu sér á nýgrilluðum samlokum. Tíminn gekk mjög vel og börnin voru til fyrirmyndar. Hægt er að skoða myndir á myndasíðunni okkar.

Meira ...

Bangsadagur - bleikur dagur 2 ÁH og 2 SBT

02/11/11

bangsadagur_2b (2) (800x600)Föstudaginn 28. október var bangsadagur/bleikur dagur hjá nemendum í 2.bekk. Flest börnin komu í náttfötum og með bangsa af öllum stærðum og gerðum. Allir skemmtu sér konunglega. Fleiri myndir má sjá á myndasíðunni undir 2.bekur-bangsadagur.

Meira ...

Samstíga foreldrar

02/11/11

samstiga_forForeldrar, kennarar og skipuleggjendur íþrótta- og æskulýðsstarfs - samstíga eflum við umhverfi barna og unglinga í Mosfellsbæ. Fræðslukvöld í Hlégarði, fimmtudaginn 3. nóvember kl. 19.30. Allir velkomnir!

Meira ...

Skólakór Varmárskóla söng á tónleikum í Hörpu

31/10/11

Korinn_i_HorpuFöstudaginn 28. október fór Skólakór Varmárskóla í Hörpu og söng á 60 ára afmælistónleikum Tónmenntarkennarafélags Íslands. Það voru 53 félagar af mið- og unglingastigi kórsins sem komu fram auk 17 hljóðfæraleikara úr Skólahljómsveit Mosfellsbæjar sem sáu um undirleik, alls 70 börn og unglingar sem öll stóðu sig mjög vel. Þessi glæsilegi hópur vakti eftirtekt tónleikagesta sem troðfylltu Norðurljósasal Hörpu til að hlýða á tónlistaratriði frá 15 grunnskólum. Rúmlega 90 félagar taka þátt í starfi Skólakórs Varmárskóla í vetur.

Meira ...

4. JV Bleikur dagur/ dótadagur

28/10/11

4JV_bleikur_dagur_okt11 (8)Börnin í 4. JV fengu valtíma í dag 28. okt. og máttu koma með dót og spil að heiman. Margir mættu í einhverju bleiku, því það var flottur föstudagur og þemað var bleikt og slaufur. Börnin skemmtu sér mjög vel.

Hægt er að skoða myndir á myndasíðunni.

Meira ...

Útinám í Vin hjá 3. HLB

28/10/11

3_HLB_i_Vin_okt11 (16)Börnin í 3. HLB fóru í útikennslustofuna Vin 27. október í blíðskaparveðri. Krakkarnir stóðu sig vel og skemmtu sér konunglega. Þau unnu íslenskutengd verkefni, sérnöfn og samnöfn og einnig stærðfræðitengd verkefni, fjöldi og stærðir.

Í lokin fengu allir sér sólberjate. Hægt er að skoða myndir á Myndasíðunni okkar.

 

Meira ...

Skáld í skólum - Steinn Steinarr

25/10/11

SteinnSteinarr 022 (800x600)Mánudaginn 24. október fengu nemendur í 9. og 10. bekk að kynnast ljóðskáldinu Steini Steinarri þegar félagarnir Svavar Knútur söngvaskáld og Aðalsteinn Ásberg skáld heimsóttu skólann. Fluttu þeir fyrir okkur skemmtilega dagskrá um Stein sem kallast: Með hugan fullan af hetjudáðum.

Meira ...

Samstíga foreldrar-sterkari unglingar

25/10/11

UnglingarKæru foreldrar

Opið hús Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar sem vera átti miðvikudaginn 26. október færist til fimmtudagsins 3. nóv og verður haldið í Hlégarði í samvinnu við foreldra í Mosfellsbæ...


Meira ...

Góður árangur Varmárskóla í UMSK hlaupinu

18/10/11

umsk hlaup (16) (800x600)Skólahlaup UMSK var haldið á föstudaginn 14. okt í Mosfellsbæ. Mikil og góð þátttaka var í hlaupinu en á sjöundahundrað keppendur tóku þátt.

Meira ...

Síða 74 af 84

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira