logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Samstíga foreldrar

02.11.2011 10:14

Verkefnið „Samstíga foreldrar – sterkari unglingar“ varð til í kjölfar forvarnafræðslunnar „Hættu áður en þú byrjar“ sem nemendur og foreldrar í grunnskólum Mosfellsbæjar fengu í haust. Niðurstöður hennar voru þær að besta forvörnin færi fram á heimilunum, í formi góðra samskipta foreldra og barna annarsvegar og samvinnu foreldra hinsvegar.

Því er öllum foreldrum boðið að eiga saman skemmtilega kvöldstund fimmtudaginn 3. nóvember kl. 19:30 í Hlégarði. Kvöldið verður létt kaffihúsastemning þar sem foreldrar geta rætt saman og hlustað á tvo framúrskarandi fyrirlesara sem eru fremstir í sínu fagi, hvor á sínu sviði. Sjá auglýsingu hér.

Dr. Álfgeir Logi Kristjánsson  hefur starfað í fjölda ára við rannsóknir á heilsuhegðun barna og unglinga. Hann starfar nú við Columbia University í NY. Álfgeir mun tala um forvarnir, heilsueflingu, líðan barna og unglinga og mikilvægi foreldrasamvinnu.

Páll Ólafsson félagsráðgjafi, fimm barna faðir og er einn skemmtilegasti fyrirlesari landsins  mun tala um sín hjartans mál sem ; samskipti foreldra og  barna og hvernig við fáum þau til að hlusta og gera það sem þau eiga að gera?

 

SAMSTÍGA FORELDRAR  -  STERKARI UNGLINGAR

Foreldrar, kennarar og skipuleggjendur íþrótta- og æskulýðsstarfs - samstíga eflum við umhverfi barna og unglinga í Mosfellsbæ.

  • Tek ég þátt í félags- og íþróttalífi barna minna?
  • Veit ég hvar barnið mitt er á kvöldin?
  • Þekki ég vini barna minna ?
  • Getur barnið mitt leitað til mín?

TÖKUM ÞÁTT Í AÐ EFLA TENGSL FORELDRA Í MOSFELLSBÆ OG MÆTUM Í HLÉGARÐ FIMMTUDAGINN 3. NÓVEMBER KL. 19:30

 

DAGSKRÁ:

  • Dr. Álfgeir Logi Kristjánsson – sérfræðingur í heilsuhegðun barna og unglinga:
    Forvarnir, heilsueflingu, líðan barna og unglinga og mikilvægi foreldrasamvinnu.
  • Páll Ólafsson félagsráðgjafi – einn skemmtilegasti fyrirlesari landsins:
    Samskipti foreldra og  barna: Hvernig við fáum þau til að hlusta og gera það sem þau eiga að gera?
  • Umræður:
    Foreldrar ræða saman um málefni sem varða börnin okkar.  Fulltrúar bæjarins, grunn- og framhaldsskóla, íþrótta- og tómstundafélaga verða á staðnu

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira