logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Gagnalistar fyrir skólaárið 2016-2017 eru komnir á heimasíðuna

27/06/16
Gagnalistar (innkaupalistar) eru komnir inn á heimasíðuna. Þá má finna undir nemendur - gagnalistar.
Meira ...

Skólaslit 2016

10/06/16Skólaslit 2016
Skólanum var að þessu sinni slitið við hátíðlega athöfn í Íþróttahúsinu Varmá. Skólakórinn söng nokkur lög, nemendur skólans fluttu fallega tónlist og síðan kom að kveðjuræðum skólastjóranna. Að því loknu afhentu umsjónarkennarar nemendum sínum vitnisburð vetrarins í heimastofum. Starfsfólk þakkar fyrir frábæran vetur og megið þið eiga gleðilegt sumar. Myndir
Meira ...

Útskrift 10. bekkjar 2016

10/06/16Útskrift 10. bekkjar 2016
Það var glæsilegur hópur nemenda sem útskrifaðist frá Varmárskóla þriðjudaginn 7. júní við hátíðlega athöfn á sal skólans. Flutt voru ávörp skólastjóra, nemenda, kennara og foreldra og veittar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu í námi og starfi. Nemendur, foreldrar og starfsfólk áttu ánægjulega stund saman. Foreldrar sáu um veitingar og aðstoð í eldhúsi og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir. Við óskum nemendum velfarnaðar og þökkum þeim fyrir samveruna. Myndir á myndasíðu
Meira ...

Nýjar myndir á myndasíðu skólans!

07/06/16
Endilega kíkið á myndasíðu skólans en þar er nú fullt af nýjum myndum frá skólastarfinu síðustu daga. Veðrið hefur leikið við okkur á útivistardögum og krakkarnir staðið sig frábærlega.
Meira ...

Skólaslit Varmárskóla

27/05/16Skólaslit Varmárskóla
Skólaslit Varmárskóla fara fram með tvennum hætti. Útskrift 10.bekkjar fer fram þriðjudaginn 7.júní kl. 20:00 í sal eldri deildar Varmárskóla. Skólaslit 1. - 9.bekkja fara fram 8. júní í Íþróttahúsinu að Varmá.
Meira ...

Skólakórinn með vortónleika

20/05/16Skólakórinn með vortónleika
Skólakórinn okkar var með velheppnaða vortónleika á dögunum. Krakkarnir í kórnum stóðu sig öll mjög vel. Þess má geta að þau eru á leið í söngferðlag til Spánar í sumar og það verður spennandi að fá fregnir af þeirri ferð. Myndir frá tónleikunum eru á myndasíðu.
Meira ...

4. bekkur í Hörpu

12/05/164. bekkur í Hörpu
Nemendur 4. bekkja fóru að hlusta á Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu. Þar flutti hljómsveitin verkið Eldfuglinn fyrir fullan sal af grunnskólanemendum víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu. Nokkrar myndir frá ferðinni eru á myndasíðu skólans.
Meira ...

Norðurlandakynning hjá 6. JV

12/05/16Norðurlandakynning hjá 6. JV
Krakkarnir í 6. JV hafa verið að læra um Norðurlöndin sl. vikur. Þann 11. maí buðu þau foreldrunum að koma í heimsókn og kynntu fyrir þeim það land sem þau hafa verið að vinna með. Sýndu plaköt um landið ásamt bæklingi sem þau unnu í Publisher. Foreldrum var svo boðið í spurningaleik sem heitir Kahoot og er spikaður í símunum en í þeim leik voru krakkarnir búnir að búa til spurningar um Norðurlöndin. Síðan var boðið upp á kaffi og meðlæti.
Meira ...

Litla upplestrarkeppnin 2016

09/05/16
Á dögunum var Litla upplestrarkeppnin haldin hátíðleg hjá 4. bekk. Markmið keppninnar er að hver og einn bæti árangur sinn í upplestri og sé því í raun og veru að keppa við sjálfan sig til að ná því takmarki. Börnin eru búin að æfa sig í upplestri síðan í nóvember, nánar tiltekið daginn eftir dag íslenskrar tungu 16. nóvember. Börnin lásu ljóð og sögur, ýmist ein , nokkur saman eða í talkór. Börnin fengu viðurkenningarskjal þar sem Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar og Radda, samtök um vandaðan upplestur og framburð þakka þeim fyrir þátttökuna. Myndir.
Meira ...

Vortónleikar Skólakórs Varmárskóla

06/05/16
Vortónleikar Skólakórs Varmárskóla verða mánudaginn 9. maí klukkan 18:00 í sal Varmárskóla. Fram koma krakkar úr 3. – 10. bekk. Tónleikar kórsins eru ávallt líflegir og skemmtilegir og eru vel þess virði að koma og hlusta. Aðgangur er kr. 1.500, ókeypis fyrir börn. Aðgangseyrir rennur óskiptur í kórsjóðinn sem notaður er í þágu kórfélaga.
Meira ...

Síða 4 af 8

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira