Upplýsingar varðandi mötuneyti
Verðlagning byggir á gjaldskrá Mosfellsbæjar sem finna má hér. Verð pr. mánuð fer eftir fjölda daga sem nemendur eru í skólanum. Nemendur geta ekki fengið afslátt þó að þau mæti ekki í allar máltíðir. Ekki er veittur systkinaafsláttur.
Greiðsluform.
Hver mánuður greiðist fyrirfram hægt er að greiða með gíróseðli eða kreditkorti.
Gíróseðill.
Foreldrar fá gíróseðil sendan heim í byrjun hvers mánaðar. Skrifstofa Mosfellsbæjar sér um innheimtu. Innheimtugjald bætist á hvern gíróseðil.
Kreditkort.
Ef greitt er með kreditkorti verður kortanúmer og gildistími korts að koma fram við skráningu, fyrir 20. hvers mánaðar áður en áskrift hefst.
Skráning í mötuneyti og óskir um breytingar.
Áskriftarbeiðni, uppsögn sem og aðar breytingar verða að fara gegnum skráningaferlið í Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 20. hvers mánaðar. Það nægir ekki að senda skilaboð. Áskrift flyst sjálfkrafa milli ára. Það þarf því ekki að endurnýja umsókn um mötuneytið á hverju hausti.
Ef nemandi fellur úr áskrift vegna uppsagnar eða skulda verður að sækja um nýja áskrift á íbúagáttinni.
Ef nemandi er með fæðuóþol eða ofnæmi verður að skila inn vottorði frá lækni þess efnis til að nemandi fái annað fæði eldað fyrir sig í skólanum.
EKKI VERÐUR HÆGT AÐ ENDURNÝJA ÁSKRIFT VIÐ ÞÁ SEM ERU Í VANSKILUM VEGNA FYRRA SKÓLAÁRS.