logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Ertu að flytja í Mosfellsbæ? Ertu búin að skrá barnið í skóla?

11/08/17
Við minnum á að allar skráningar í skóla fara fram í gegnum íbúagáttina. Þar eru börn skráð í skóla, mötuneyti og frístundasel.
Meira ...

Frábært framtak leiklistarhóps

28/06/17Frábært framtak leiklistarhóps
Leiklistarvalið í Varmárskóla sýndi á dögunum frumsamið leikrit. Ákveðið var að allur ágóði af miðasölu myndi renna til góða málefnis. Fyrir valinu var Dropinn sem er styrktarfélags sykursjúkra barna. Á myndum má sjá fulltrúa leiklistarvalsins, þær Kristínu Rán, Svandísi Dóru, Natalíu Erlu og Vigdísi Helgu ásamt Hreindísi Ylfu leikstjóra, afhenda Dropanum 120.000 kr sem krakkarnir söfnuðu. Frábært framtak hjá leiklistarhópnum okkar.
Meira ...

Niðurstöður lesfimiprófa

23/06/17
Lestrarpróf voru lögð fyrir þrisvar sinnum yfir skólaárið í vetur í 1.-10. bekk. Gerð var samantekt á niðurstöðum þessara prófa. Þar má sjá hvernig við stöndum okkur út frá viðmiðum Menntamálastofnunar.
Meira ...

Lestrarstefna Varmárskóla

23/06/17Lestrarstefna Varmárskóla
Nú hefur Lestrarstefnan okkar hér í Varmárskóla verið endurskoðuð og uppfærð.
Meira ...

Niðurstöður samræmdra prófa í 9. og 10. bekk

16/06/17
Búið er að taka saman niðurstöður samræmdra prófa í 9. og 10. bekk Varmárskóla.
Meira ...

Gagnlistar fyrir skólaárið 2017-2018

15/06/17
Gagnlistar eru komnir inn fyrir 1.-10. bekk skólaárið 2017-2018. 1. og 2. bekkir verða með ritfangasjóð. Munið að kíkja í töskur og sjá hvað er þegar til og má nýta áfram á næsta ári. Gagnalistarnir eru hér.
Meira ...

Skólaslit

07/06/17
Nú er skólaárinu lokið og skólaslit voru í dag hjá 1.-9. bekk. Þeim var skipt í þrennt og voru 4.-6. fyrstir, þá 7.-9. og loks 1.-3. bekkur. Skólakórinn söng, stiginn dans, tónlistaratriði sögur og ljóð flutt. Einnig fóru skólastjórarnir yfir skólaárið og það sem stóð upp úr eftir árið. Vinaliðar fengu viðurkenningar fyrir vel unnin störf á árinu. Við þökkum öllum fyrir frábært ár og sjáumst í ágúst. Nokkrar myndir frá skólaslitum eru hér.
Meira ...

Útskrift 10. bekkinga

07/06/17Útskrift 10. bekkinga
Þriðjudaginn 6. júní voru nemendur úr 10. bekk útskrifaðir við hátíðlega athöfn sem fram fór í eldri deild skólans. Við í Varmárskóla erum ákaflega stolt af þessu frábæra unga fólki sem hefur staðið sig með mikilli prýði og verðið skólanum til sóma. Við þökkum 10. bekkingum fyrir ánægjulegan tíma á liðnum árum og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Meira ...

Frábær ferð 10. bekkja

06/06/17Frábær ferð 10. bekkja
10. bekkingar fóru í útskriftarferð dagan 30. maí til 1. júní. Gist var á Stokkseyri þaðan var farið í riverrafting, paintball, draugasetur, hellaferð, sunda, adrenalíngarðinn og út að borða víðsvegar um suðurlandi. Ferðin gekk í allastaði glimrandi vel. Nemendur voru sjálfum sér, foreldrum sínum og skólanum algerlega til sóma.
Meira ...

Útivistardagar

06/06/17
Nemendur skólans hafa nýtt þessa síðustu daga til útiveru, kynnast umhverfinu og njóta samvista. Á myndasíðu skólans má sjá myndir frá þessum ferðum sem og hreyfileikum yngri deildar.
Meira ...

Síða 3 af 7

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira